Á þínu svæði
Norðvestur
15. maí 2012
Nýir heiðursfélagar Framsóknarfélags Reykjavíkur

Á fjölmennum aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur voru Sigrún Sturludóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir og Hörður Gunnarsson gerð að heiðursfélögum félagsins. 

Í máli Sigrúnar Magnúsdóttur kom fram að Sigrún Sturludóttir væri fágætt eintak af félagsmálakonu frá unga aldri. Hún er kletturinn í hafinu hjá Framsókn, gengt ótal trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, innan hans og utan. Flokksþingið 2005 veitti henni jafnréttisverðlaun Framsóknar, enda hafði hún gert kraftaverk í stjórnartíð sinni hjá Landssambandi Framsóknarkvenna. 

Áslaug Brynjólfsdóttir er eldheit félags- og framsóknarkona, verðug fyrirmynd kvenna, sístarfandi og hugsandi um hag Framsóknar. Áslaug hlaut einnig jafnréttisverðlaun Framsóknar 2005. 

Hörður Gunnarsson er traustur Framsóknarmaður, sem heldur flokknum gangandi. Þegar hugsjónin er leiftrandi skýr er auðvelt að koma henni til skila og hafa hana að vopni í viðureignum við pólitíska andstæðinga.

Fundarmenn risu úr sætum og hylltu þessa nýu heiðursfélaga félagsins.

Senda á facebook Senda grein Prenta grein
15. maí 2012
Nýr formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur – Jón Ingi Gíslason

Á fjölmennum aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur þann 7. maí s.l. var kjörinn nýr formaður félagsins, Jón Ingi Gíslason. Hann á ættir að rekja í Biskupstungur og verið dyggur liðsmaður flokksins um árabil. Á fundinum var Sigrúnu Magnúsdóttur, fráfarandi formanni, þökkuð góð og mikil vinna fyrir félagið, enda starfsemin verið mikil og fjölbreytt á liðnum misserum.

Í stjórn með Jóni Inga voru kjörin: Þuríður Bernódusdóttir (varaformaður), Kristján Hall, Ólafur Hjálmarsson (gjaldkeri), Bryndís Guðmundsdóttir (ritari), Magnús H. Gíslason og Nanna Gunnlaugsdóttir. Varamenn eru: Jónína Benediktsdóttir og Hafsteinn Ágústsson.

Í máli nýkjörins formanns var bent á mikilvægi þess að Framsóknarmenn verði viðbúnir því að það verði lítið sumarfrí enda kosningavetur framundan. Verkefnin eru ærin og mikilvægt að ná að virkja sem flesta í starfinu framundan. Þakkaði hann þingmönnum flokksins og formanni fyrir dugnað og ósérhlífni. Þau hafa verið dugleg að taka þátt í viðburðum Framsóknarfélags Reykjavíkur á liðnu starfsári.

Lykillinn að velgegni Framsóknarflokksins í komandi kosningum er fyrnasterkt starf á Reykjavíkursvæðinu. Ísland þarf stöðugleika Framsóknarstefnunnar á viðsjárverðum tímum pólitískra öfga, stefnu flokks sem gengur óhræddur og staðfastur inn í framtíðina með óbilandi trú á Ísland að leiðarljósi. 

Senda á facebook Senda grein Prenta grein
Eldri fréttir
7. maí 2012Samræmdar framboðsreglur
26. apríl 2012Varaþingmenn taka sæti
19. apríl 2012Vorferð Framsóknarmanna
19. apríl 2012Gleðilegt sumar!
12. apríl 2012Framsóknarfélag Reykjavíkur krefst þess að viðræður við ESB verði stöðvaðar strax!
8. apríl 2012Gleðilega páska!
2. apríl 2012Páskabingó FRAMSÓKNAR
30. mars 2012Framsóknarmenn vilja þak á hækkun verðtryggingar
28. mars 2012Er verkalýðshreyfingin í kreppu?
20. mars 2012Repja – orkujurt sem umhverfisvænt eldsneyti
 
Allar fréttir
Dagbókin framundan
13. okt. 2012
Kjördæmisþing KFNV að Reykjum í Hrútafirði
Allir viðburðir
Málefni
Efnahagur
Fjölskyldur
Lýðræði
Atvinnulíf
Þekking
 
Okkar fólk á blogginu
16. maí 2012
Eygló Þóra Harðardóttir
Ódýrari námsmannaíbúðir?
14. maí 2012
Gunnar Bragi Sveinsson
Hreyfingin (Dögun) kemur í veg fyrir aðgerðir fyrir heimilin.
14. maí 2012
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Er hægt að halda afneitun áfram?
18. apríl 2012
Ásmundur Einar Daðason
Samgönguáætlun 2011-2022
15. mars 2012
Birkir Jón Jónsson
Ummæli forsætisráðherra um gjaldmiðilinn
 
Framsókn á netinu