10 gefa kost á sér í prófkjöri framsóknarmanna í Mosfellsbæ
Það eru 10 einstaklingar sem gefa kost á sér í væntanlegu prófkjöri framsóknarmanna í Mosfellsbæ. Eftirtaldir gefa kost á sér til þátttöku:
Ásta Björk Benediktsdóttir í 2.-3.sæti Björg Reehaug Jensdóttir í 2.-3.sæti Bryndís Bjarnarson í 2.sæti Eggert Sólberg Jónsson í 5.-6.sæti Guðni Þorbjörnsson í 3.-5.sæti Linda Björk Stefánsdóttir í 3.-4.sæti Marteinn Magnússon í 1.sæti Óli Kárason Tran í 5.-6.sæti Snorri Hreggviðsson í 2.sæti Sveinbjörn Ottesen í 4.sæti
Prófkjörið fer fram laugardaginn 27. febrúar nk. og verður kjörfundur frá kl. 10:00-15:00 í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar að Háholti 14 í Mosfellsbæ.
Prófkjörið er opið öllum sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn, eru með lögheimili í Mosfellsbæ og með kosningarétt á kjördegi.
Utankjörfundarkosning fer fram dagana 22.-26. febrúar á milli kl. 13.00-17.00 á skrifstofu flokksins Hverfisgötu 33 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Þröstur Karlsson í 894-5111 og Óðinn Pétur í 868-1313.
Frá vinstri: Linda Björk Stefánsdóttir, Guðni Þorbjörnsson, Sveinbjörn Ottesen, Marteinn Magnússon, Ásta Björk Benediktsdóttir, Björg Reehaug Jensdóttir, Óli Kárason Tran, Snorri Hreggviðsson, Bryndís Bjarnason og Eggert Sólberg Jónsson