Fréttir
4. febrúar 2010
Minningarbók um Steingrím Hermannsson

Á skrifstofu Framsóknarflokksins liggur frammi minningarbók þar sem þeir sem vilja heiðra minningu Steingríms Hermannssonar geta ritað nafn sitt í.

Steingrímur var einn af ástsælustu stjórnmálamönnum þjóðarinnar um langt skeið. Hann sat á þingi á árunum 1971-1994 og átti sæti í ríkisstjórn frá 1978-1991, þar af sem forsætisráðherra 1983-1987 og 1988-1991.  Steingrímur var formaður Framsóknarflokksins á árunum 1979-1994.

Hægt verður að koma við á skrifstofu Framsóknarflokksins, í dag, fimmtudag, frá kl. 13:00-17:00, á morgun föstudag og á mánudaginn á sama tíma.

Senda grein Prenta grein