Fréttir
13. júní 2010
Til hamingju með daginn SUFarar!

Samband ungra framsóknarmanna (SUF) var stofnað þennan dag 13. júní árið 1938 á Laugarvatni og er því 72 ára í dag.

Í ræðu Hermanns Jónassonar, forsætisráðherra, er bar yfirskriftina „lífshamingjan er fólgin í baráttu og starfi" á stofnfundinum á Laugarvatni sagði m.a.:

„Háttvirta samkoma!
Við erum hér saman komin til þess að ræða um það sem í daglegu tali eru kölluð stjórnmál eða pólitík - orð og hugtak, sem sumt fólk þykist ekki mega heyra nefnt. En þetta fólk hugleiðir það ekki, að vel flestar athafnir og flest gæði, sem við njótum, eru ávöxtur stjórnmála eða ofin inn í þau að meira eða minna leyti. Þetta hús, sem við nú erum stödd í, er ávöxtur stjórnmálabaráttu.
Vegirnir, sem við þutum eftir hingað, langan veg eða skamman, eru það einnig. Sama er að segja um símann, sem við nú notum til að reka erindi í fjarlægum héröðum. Stjórnmálin eru leit okkar allra að því hvernig við getum skapað traust og heilbrigt þjóðfélag með hamingjusömum, ábyrgum og gæfusömum einstaklingum. Því er nú þannig varið, að einstaklingarnir geta ekki lifað einir fyrir sig. Þeir verða, til þess að lífið verði þeim þolanlegt, að lifa i félagi hver við annan. Og fyrir þessu samfélagi, sem við köllum þjóðfélag, erum við stöðugt að reyna að finna betri form og reglur. Við vitum um ýmislegt, sem er nauðsynlegt til þess að þjóðfélagið sé traust og einstaklingarnir hamingjusamir. Við vitum meðal annars af reynslu sögunnar, að þjóðfélagið getur verið veikt, þótt það eigi mikið voldugra einstaklinga. Og við vitum það einnig, að þjóðfélagið getur því aðeins verið heilbrigt og traust, að einstaklingar þess séu ábyrgir og hæfir. Að þessu marki erum við að vinna, og til þess erum við saman komin hér á þetta flokksþing."

Í kveðju til ungra Framsóknarmanna sagði Jónas Jónsson, formaður Framsóknarflokksins, m.a.:

„Ungir Framsóknarmenn! Notið þetta fyrsta flokksþing ykkar til að festa heit í málum lands og þjóðar. Vitið að á ykkur hvílir mikil ábyrgð. Við ykkur eru tengdar miklar vonir. Gangið fram með djörfung og festu í því mikla verki, sem bíður íslendinga, að gera þjóðina frjálsa, sterka og samheldna. Munið, að hin fyrsta sókn hefir verið hafin og hennar sjást glögg merki um allt land.
Ykkar sókn á að verða enn meiri. Verkefni ykkar og átök stærri.
Gangið hugheilir til starfa. Þá mun gifta fylgja hverju ykkar fótmáli um mörg ókomin ár."

Til hamingju með daginn SUFarar!

Senda grein Prenta grein