Nefnd sem skipuð var til að yfirfara og móta stefnu Framsóknarflokksins í sjávarútvegsmálum er kominn á fullt í störfum sínum. Haldnir hafa verið tveir fundir nú í júní þar sem nefndarmenn hafa skipst á skoðunum um núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, ályktanir Framsóknarflokksins á síðustu flokksþingum og viðrað eigin skoðanir. Sumarið verður notað til að taka saman punkta úr því efni sem samnast hefur á fundunum. Einnig munum við fá til liðs við nefndina sérfræðinga á sviðinu til að dýpka og undirbyggja rökræðuna. Í september heldur vinnan áfram m.a. með gestum en einnig opnum fundum til að sérhver flokksmaður eigi þess kost að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Nefndin á að skila drögum að ályktun fyrir næsta flokksþing sem væntanlega verður haldið á fyrstu mánuðum ársins 2011.