Ríkisstjórnir
Ríkisstjórnarþátttaka Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn hefur frá stofnun sinni í desember 1916 átt aðild að 22 ríkisstjórnum en alls hafa 37 ríkisstjórnir setið hér að völdum frá 1917 þegar ráðherrar urðu fyrst fleiri en einn.  Flokkurinn hefur farið með forystu í 12 þessara stjórna.  Hér má sjá yfirlit yfir þessar ríkisstjórnir og hverjir hafa setið í þeim fyrir hönd flokksins. Í 90 ára sögu hefur flokkurinn setið í ríkisstjórn um rúmt 61 ár (m.v. 24. maí 2007).  Það er auðvitað lengra en aðrir hérlendir flokkar enda eru þrír núverandi þingflokka aðeins 8 ára gamlir þ.e. Samfylkingin, Vinstri-Græn og Frjálslyndi flokkurinn.   Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður í maí 1929 og hefur setið í ríkisstjórn í rúm 59 ár af sinni 78 ára sögu (m.v. maí 2007)