Flokksþing

Framsóknarflokkurinn heldur flokksþing annað hvert ár. Skylt er þó að boða til flokksþings ef meirihluti kjördæmisþinganna óskar þess. Flokksþing hefur æðsta vald í málefnum Framsóknarflokksins. Það ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum til næstu tveggja ára og setur flokknum lög. Þar er einnig æðsta stjórn flokksins kosin þ.e. formaður, varaformaður og ritari.  Á flokksþingi framsóknarmanna eiga sæti kjörnir fulltrúar flokksfélaga. Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa á flokksþing fyrir hverja byrjaða 15 félagsmenn. Miðstjórnarmenn eru sjálfkjörnir fulltrúar á flokksþing. Næsta flokksþing verður að óbreyttu í mars 2011.