Í miðstjórn Framsóknarflokksins eiga sæti um 180 fulltrúar sem kjörnir eru á eftirfarandi hátt:
Einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn í kjördæmi eða brot úr þeirri tölu umfram 50. Þessir fulltrúar eru kjörnir til eins árs í senn, eftir reglum, sem kjördæmisþing setur. Skylt er að a.m.k. þriðjungur þeirra séu úr röðum ungra framsóknarmanna þ.e. undir 35 ára aldri.
Allir alþingismenn flokksins og ráðherrar.
Fulltrúar í landsstjórn og framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins sem ekki eru kjörnir á annan hátt.
Stjórn launþegaráðs Framsóknarflokkins þ.e. þrír stjórnarmenn og þrír til vara.
Fyrrverandi þingmenn Framsóknarflokksins enda séu þeir félagsmenn.
Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins skv. 6. kafla laga flokksins.
7 fulltrúar kosnir af landsstjórn.
Miðstjórnin skal boðuð til fundar tvisvar á ári, vor og haust. Á haustfundi skal taka félagsstarf flokksins á komandi starfsári sérstaklega til umræðu. Aðrir fundir miðstjórnar skulu haldnir, þegar landsstjórn flokksins ákveður, og eru þeir löglegir, ef þar mætir meirihluti miðstjórnarmanna. Einnig er skylt að boða til miðstjórnarfundar ef 1/3 miðstjórnarmanna krefst þess skriflega.