Fjármálanefnd Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja fjáröflunarstarf Framsóknarflokksins og hafa umsjón með framkvæmd þess í samráði við framkvæmdastjóra.
Málefnanefnd Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu Framsóknarflokksins.
Fræðslu- og kynningarnefnd Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með framkvæmd kynningar- og fræðslumála Framsóknarflokksins.
Laganefnd Innan miðstjórnar starfar laganefnd. Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og tveir meðstjórnendur. Formaður skal vera lögfræðimenntaður. Hlutverk nefndarinnar er að skera úr um ágreining sem upp kann að koma um hvernig beri að skilja lög þessi, lög einstakra félaga eða sambanda flokksins, sem og reglur um frambjóðendaval.