Ályktanir
7. janúar 2010
Ályktun frá Framsóknarfélagi Reykjavíkur

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi stjórnar Framsóknarfélags Reykjavíkur þann 6. janúar 2010.


Ánægju lýst með ákvörðun forseta

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur lýsir ánægju með þá ákvörðun forseta Íslands að setja lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninga við Breta og Hollendinga í dóm þjóðarinnar. Jafnframt skorar stjórnin á ríkisstjórn Íslands að efla kynningu erlendis á málstað Íslands í þessu erfiða deilumáli. Nú er lag.

Senda grein Prenta grein