Við tökum vel á móti öllum sjálfboðaliðum sem vilja aðstoða okkur í kosningabaráttunni. Ef þú vilt taka þátt hafðu þá samband við skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 540 4300 eða með því að senda póst á netfangið framsokn@framsokn.is. Þá ertu ávallt velkomin(n) í heimsókn á kosningaskrifstofu framboðsins á þínu svæði.
Safna meðmælendum
Það þarf að safna um 330-440 meðmælendum í hverju kjördæmi landsins til að framboð geti boðið þar fram. Þú getur aðstoðað okkur við að safna undirskriftum þeirra sem mæla með því að Framsóknarflokkurinn geti boðið fram lista í þínu kjördæmi.
Hér að neðan getur þú prentað út meðmælendalista fyrir þitt kjördæmi
Tekið er á móti útfylltum meðmælendalistum á kosningaskrifstofum flokksins um land allt.
Kíkja á kosningaskrifstofur um land allt
Við erum með kosningaskrifstofur um land allt og þurfum öflugt liðsinni við þau fjölmörgu verkefni sem eru framundan í baráttunni. Kíktu á kosningaskrifstofuna á þínu svæði og leggðu okkur lið. Það verður tekið vel á móti þér!
Frjáls framlög
Margt smátt gerir eitt stórt! Framsóknarflokkurinn er 13.000 manna fjöldahreyfing og við þurfum að þínum stuðningi að halda!
Þú getur aðstoðað með því að:
... smella á styrkja flokkinn á forsíðu framsokn.is
... hringja í styrktarlínu Framsóknarflokksins 907-2500 og þá gjaldfærast sjálfkrafa 2.000 kr. á símareikning þinn.
Koma boðskapnum á framfæri
Við þurfum þína hjálp til að koma okkar skilaboðum okkar til kjósenda á framfæri.
Þú getur aðstoðað m.a. með því að:
Skrifa greinar í blöð og á bloggsíður og leggja málstaðnum lið. Skrá þig á póstlista og fá þannig upplýsingar á undan öðrum og áframsenda skilaboð frá okkur. Setja bannera á vef- og bloggsíður. Prenta út og dreifa veggspjöldum og dreifimiðum til þinna nánustu, á vinnustaði, félagsmiðstöðvar, verslanir o.s.frv.
Hjálpaðu okkur að gera skemmtilega baráttu enn skemmtilegri
Kosningabaráttan framundan verður stutt, snörp og skemmtileg. Við ætlum að hafa baráttuna enn skemmtilegri en venjulega og leitum því til ykkar eftir hugmyndum og efni. Við viljum virkja kraftinn þeirri öflugu 13 þúsund manna grasrótarhreyfingu sem Framsóknarflokkurinn er.
Verið óhrædd við að senda okkur myndir, vídeó, pistla, teiknimyndir, skemmtilegar hugmyndir eða annað það sem getur hjálpað okkur við að koma stefnumálum Framsóknarflokksins um aukið lýðræði, nýja stjórnarskrá, aðgerðir til bjargar heimilum og fyrirtækjum, samfélagi þar sem manngildi er ofar auðgildi o.s.frv. í framkvæmd.
Sendið efnið á framsokn@framsokn.is eða hringið í okkur í síma 540 4300 og komið hugmyndum ykkar á framfæri.