Málefni
Þekking

Með skynsamlegri nýtingu og uppbyggingu auðlinda þjóðarinnar, hugvits, handa og náttúru mun Ísland ná sér fljótt á strik á ný.

Á Íslandi skulu allir njóta jafnra tækifæra til menntunar, óháð efnahag og búsetu. Háskólar landsins, framhaldsskólar og stuðningskerfi stúdenta verða að laga starfsemi sína að breyttum aðstæðum og nýjum verkefnum. Tímabundinn samdráttur þjóðartekna má ekki verða til þess að dregið verði úr fjölbreytni náms- og námsleiða eða að vegið verði að jafnrétti til náms.

Virðing fyrir náttúrunni og landsgæðum hefur verið grundvallarstef frá stofnun Framsóknarflokksins. Náttúruauðlindir á ávallt að nýta í anda sjálfbærrar þróunar og samþættingu við efnahagsvöxt, félagslega velferð og verndun umhverfisins.

Við viljum...

  • Auka möguleika fólks á að stunda nám í framhaldsskólum frá eigin heimili.
  • Fara í stórátak í grunnrannsóknum á íslenskri náttúru. Þær rannsóknir nýtast meðal annars við gerð rammaáætlunar og við undirbúning framkvæmda.
  • Styrkja enn frekari rannsóknir á djúpborun og efla rannsóknir til að leita leiða til betri nýtingar jarðvarma.
  • Vinna áfram að útgáfu sérleyfa til rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á íslensku yfirráðasvæði.
  • Auka framlög til samkeppnissjóða sem styðja við tækniþróun og nýsköpun enda hefur það aldrei verið mikilvægara en nú.
  • Hefja uppbyggingu vísindagarða með það að leiðarljósi að auka samstarf stofnana og fyrirtækja.
  • Að framfærslugrunnur námslána endurspegli raunverulega framfærsluþörf á hverjum tíma og ef námi lýkur á tilskildum tíma verði hluta námsláns breytt í styrk.
  • Lánshæft sumarnám í háskólum og fjölga atvinnutækifærum stúdenta.
  • Styðja við sumarnám í framhaldsskólum - bæði í staðbundnu námi og fjarnámi.
  • Kaupa eða leigja íbúðir til að fjölga stúdentaíbúðum í samvinnu við Íbúðalánasjóð og bankana.
  • Efla sí- og endurmenntun þar sem hugað verði sérstaklega að lausnum fyrir fólk sem þarf að skipta um starfsvettvang, t.d. vegna atvinnumissis eða örorku.
  • Tekin verði frá svæði vegna náttúruverndar og ferðaþjónustu sem alls ekki verði hróflað við, meðan á vinnu við rammaáætlun stendur, svo sem Jökulsá á Fjöllum og Langisjór.
  • Standa vörð um íslenska hagsmuni í loftslagsmálum enda hlutfall endurnýjanlegrar orku mun hærra hér á landi en víðast hvar erlendis.

Vinnum saman að...

... betri menntun.

... aukinni þekkingu.

... bættu umhverfi.