Breyta stillingumVenjulegt útlit
Málefni
Atvinnulíf

Vinna, vöxtur, velferð eru leiðarstef sem alltaf eiga við og ávallt ber að hafa í heiðri. Öflugt atvinnulíf skapar þjóðinni tekjur, enda verða erlendar skuldir þjóðarinnar ekki greiddar með hærri sköttum heldur aukinni framleiðni og gjaldeyristekjum.

Tækifærin leynast víða, meðal annars í hreinni orku, gjöfulum fiskimiðum, öflugum landbúnaði og háu menntastigi. Mikilvægt er að búa atvinnulífinu heilbrigt og stöðugt rekstrarumhverfi þar sem aðgengi að fjármagni, samgöngum, fjarskiptum er tryggt. Ýta þarf undir eðlilega fjölbreytni í atvinnulífinu um land allt.

Lykilatriði hvað varðar öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er skattaumhverfið og aðgengi að fjármagni. Mikilvægt er að lækka vexti, jafnvel þótt raunvextir yrðu með því neikvæðir tímabundið. Sé það ekki gert er íslensku atvinnulífi og heimilum veruleg hætta búin.

Velferð og réttlát skipting byrða í gegnum skattkerfið byggir á verðmætasköpun atvinnulífsins og hafna Framsóknarmenn öllum hugmyndum um að atvinnuleysi eigi að vera hagstjórnartæki. Framsóknarflokkurinn hefur ætíð lagt höfuðáherslu á atvinnusköpun og atvinnu fyrir alla. Frá þeirri stefnu má hvergi víkja.

Við viljum...

  • Leggja áherslu á meiri fjölbreytni atvinnulífs með því að bæta rekstrarumhverfi minni fyrirtækja, fjölskyldurekstrar og einyrkja.
  • Sanngjarnt og samkeppnisfært skattaumhverfi sem stuðlar að nýsköpun og fjárfestingu.
  • Auðvelda skráningu hlutafjár í erlendri mynt til að laða að erlent fjármagn og auðvelda fjármögnun atvinnulífsins.
  • Stuðla að kröftugri nýsköpun og atvinnuþróun um allt land, m.a. til að treysta þróun atvinnulífs og búsetuskilyrða á landsbyggðinni.
  • Farið verði í sérstakt átak til að bæta vegtengingu þeirra byggðarlaga sem enn búa við ófullnægjandi tengingar við þjóðvegakerfið. Það verði í algerum forgangi enda grundvallarforsenda byggðar og eðlilegs atvinnureksturs.
  • Endurskoða verður samgönguáætlun með áherslu á mannaflsfrekar framkvæmdir.
  • Sameina Nýsköpunarsjóð og lánasvið Byggðastofnunar í Endurreisnarsjóð Íslands.
  • Byggja áfram á skynsamlegri virkjun vatns- og jarðhitaorku sem skapi þjóðarauð til framtíðar.
  • Ljúka vinnu við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og leitast við að á hverjum tíma verði aðgangur að orku til skynsamlegrar atvinnuuppbyggingar á Íslandi.
  • Útvega fyrirtækjum orku sem fjárfesta á Íslandi, sérstaklega skal taka mið af því hversu umhverfisvæn þau eru.
  • Kynna landið allt til eflingar ferðaþjónustu, með áherslu á það sem íslenskt er: Náttúra, matarhefðir, menning og mannlíf. Ímynd landsins byggi á hreinleika, öryggi, góðri þjónustu og fegurð þess.
  • Efla og hlúa að matvælaframleiðslu þjóðarinnar í landbúnaði og sjávarútvegi sem bæði skapa gjaldeyristekjur og spara gjaldeyri. Fæðuöryggi er Íslendingum brýnt hagsmunamál.
  • Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar líkt og kveðið er á um í skilyrðum síðasta flokksþings framsóknarmanna. Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.

Vinnum saman að...

... því að finna og nýta tækifærin.

... aukinni verðmætasköpun.

... traustu umhverfi fyrir frumkvöðla.

... meiri fjölbreytni.