Breyta stillingumVenjulegt útlit
Málefni
Fjölskyldur

Með samtakamætti og samvinnu getum við byggt upp samfélag þar sem manngildi eru sett ofar auðgildi. Samstaða þjóðarinnar grundvallast á því að byrðunum sé skipt á réttlátan og sanngjarnan hátt.

Íslendingar vilja öflugt velferðarkerfi. Mikilvægt er að fjármunum til velferðar sé vel varið og þeir njóti sem mest þurfa á að halda. Einfalt og skilvirkt velferðarkerfi sem byggir á sanngirni, og tryggir að þeim sem lakast standi sé hjálpað, er forsenda þess að sátt verði um nauðsynlegan og óhjákvæmilegan niðurskurð ríkisútgjalda.

Allir þurfa öruggt húsaskjól í samræmi við hóflegar þarfir hvers og eins og þurfa að hafa raunverulegt val um búsetuform.

Öflugasta velferðarúrræðið er atvinna fyrir alla. Að því viljum við Framsóknarmenn vinna með ráðum og dáð.

Við viljum...

  • Grípa til almennra aðgerða sem auðvelda heimilum landsins að standa við skuldbindingar sínar.
  • Færa höfuðstól íbúðalána niður um 20%, með hugsanlegu hámarki.
  • Skattkerfi sem gætir hófs og sanngirni við öflun fjár til sameiginlegra verkefna samfélagsins þannig að þær tekjur sem þarf til lágmarksframfærslu verði ekki skattlagðar.
  • Hefja viðræður við aðila vinnumarkaðarins með það að markmiði að ná betra jafnvægi á milli vinnu og fjölskyldulífs. Innan Stjórnarráðsins verði sett á stofn skrifstofa barna og fjölskyldumála.
  • Móta velferðarstefnu Íslands. Sú stefna taki mið af fyrirsjáanlegum breytingum í aldurssamsetningu þjóðarinnar og hafi að leiðarljósi að standa vörð um kjör þeirra sem minna mega sín á samdráttartímum.
  • Tryggja stöðu Íbúðalánasjóðs til frambúðar og heimila sjóðnum að fara í samstarf við aðrar fjármálastofnanir.
  • Breyta greiðsluerfiðleikaúrræðum Íbúðalánasjóðs á þann veg að heimilað verði að ákveðið fast hlutfall heildartekna fjölskyldna og einstaklinga sem eru í greiðsluerfiðleikum renni til greiðslu íbúðalána, þó þannig að jafnræðis sé gætt. Þetta úrræði nái jafnframt til annarra lánastofnana.
  • Efla frjálsan sparnað ungs fólks með mótframlagi ríkisins vegna kaupa á húsnæði, búseturétti eða framlags í byggingarsamvinnufélag.
  • Að sparnaður í velferðarkerfinu einkennist af samráði, fagmennsku og eins mikilli sátt og mögulegt er. Þess skal gætt í hvívetna að skert þjónusta vegna sparnaðar verði ekki varanleg eða óbætanlegt tjón verði unnið á grunneiningum kerfisins.
  • Tryggja að eldri borgarar geti aflað sér hóflegra tekna án þess að bætur skerðist.
  • Efla stoðkerfi heilbrigðiskerfisins til að tryggja sem besta nýtingu fjármuna með uppbyggingu einnar rafrænnar sjúkraskrár og með innleiðingu rafrænna apóteka á sjúkrahúsum.
  • Auka og bæta göngudeildaþjónustu spítalanna og færa þær nær heilsugæslunni, auka samvinnu sjúkrahúsa og heilsugæslu, bæði við bráðamóttöku og eftirmeðferð.
  • Efla samstarf við frjáls félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir ríkisins til að standa vörð um líkamlega og andlega lýðheilsu.

Vinnum saman að...

... bættum hag fjölskyldna.

... því að tryggja kjör þeirra sem standa höllum fæti.

... öflugri, hagkvæmri og markvissri velferð.