Málefni
Efnahagur

Viðreisn fjármálakerfisins er forgangsmál. Þegar fjármálakerfið verður endurreist er mikilvægt að lausnirnar séu varanlegar, skapi stöðugleika, tryggi öflugt atvinnulíf og einstaklingum og fjölskyldum örugga þjónustu. Framsóknarflokkurinn hafnar allri einangrunarstefnu og telur að öflug samkeppni og þátttaka Íslendinga í alþjóðlegu hagkerfi sé forsenda bættra lífskjara. Við uppbygginguna verði byggt á þeirri þekkingu sem aflað verður í rannsókn á bankahruninu haustið 2008.

Nú þegar verður að koma bankakerfinu í starfshæft horf meðal annars með aðkomu kröfuhafa, auknu gegnsæi og hagræðingu í rekstri, t.a.m. með sameiningum. Aukið aðgengi að lánsfé er grundvallaratriði í endurreisn atvinnulífsins.

Við viljum...

  • Jafnvægi í efnahagsmálum, Það er forgangsmál er að lækka verðbólgu og leggja áherslu á að ná markmiðum Maastricht-skilmálanna um upptöku evru á kjörtímabilinu.
  • Koma gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar í varanlega höfn og afnema gjaldeyrishöft sem fyrst, með samningum við erlenda krónueigendur og íslenska lífeyrissjóði.
  • Móta stefnu í gjaldmiðilsmálum, fara í aðildarviðræður við ESB og tengja krónuna við evru með upptöku evru sem langtímamarkmið.
  • Blása lífi í fjárfestingar á hlutabréfa- og fasteignamarkaði með aðgerðum eins og afnámi stimpilgjalda, breytingum á lánareglum Íbúðalánasjóðs og skattaafslætti vegna hlutabréfakaupa.
  • Eftirlitsstofnanir ríkisins á sviðum neytenda- og samkeppnismála verði efldar þar sem styrkur þeirra og sjálfstæði skipta höfuðmáli.
  • Koma rekstri bankanna í eðlilegt horf, þannig að þeir geti þjónað almenningi og fyrirtækjum.
  • Semja um aðkomu kröfuhafa að bönkunum og selja hlut í þeim þegar skapast hefur markaður með hlutabréf. Hið opinbera haldi eftir eignarhlut til að tryggja eftirlit með starfsemi bankanna og standa vörð um réttindi smærri hluthafa með aðild að stjórn þeirra.
  • Endurskipuleggja og efla eftirlitsstofnanir fjármálamarkaðarins.
  • Að eignarhald á einkahlutafélögum verði skráð hjá fyrirtækjaskrá við stofnun og eigendaskipti. Aukið gagnsæi kemur í veg fyrir dulið eignarhald og krosseignatengsl.
  • Að stærri lánveitingar og lántökur til hluta félaga og fjárfestingafélaga, sem og til helstu hluthafa í slíkum félögum, verði tilkynningaskyldar til Fjármálaeftirlitsins.

Vinnum saman að...

... frjálsu, opnu og ábyrgu viðskiptalífi og samkeppnisumhverfi.

... heilbrigðri samkeppni á öllum sviðum.

... heilbrigðum, opnum og gagnsæjum verðbréfamarkaði.