Pistlar
5. febrúar 2010 | Birkir Jón Jónsson
Hvar er aðhald fjölmiðla?

Eftir rúmlega mánaðarhlé kom Alþingi saman sl. föstudag. Ég átti von á því að fyrstu mál stjórnarmeirihlutans myndu snúast um skuldastöðu heimilanna, of mikið atvinnuleysi og vanda atvinnulífsins. Því miður hefur Alþingi ekki tekið umræðu um þessi mikilvægu mál nú á fyrstu dögum þingsins heldur hafa málefni Vestnorræna ráðsins verið í fyrirrúmi. Ég er ekki þar með að kasta rýrð á þau málefni en hefði haldið að staða efnahagsmála og lausnir þeirra mála væru brýnni mál miðað við stöðu þjóðfélagsins í dag.

Það er rétt að minna á að fyrir ári síðan var dagskrá þingsins með svipuðu sniði og nú. Þá höfðu þingmenn Vinstri grænna sig mikið í frammi í þingsal með hrópum og köllum - þar heyrðust fyrst orðin „vanhæf ríkisstjórn". Svo mikil urðu lætin í þingsalnum að fresta þurfti þingfundi vegna þeirra. Nú er þessi sami flokkur kominn til valda ásamt Samfylkingunni og dagskrá þingsins með þeim hætti sem raun ber vitni. Lítið sem ekkert hefur verið fjallað um þessa uppákomu þingmanna Vinstri grænna á ársafmæli uppreisnarinnar í þingsalnum.
Hlutur fjölmiðla í þessum efnum er eftirtektarverður. Ekki hefur verið mikið gert úr því að forgangsmál stjórnarmeirihlutans, nú eftir að þing kemur saman, skuli vera líkt og raun ber vitni. Á síðasta ári var mjög mikið gert úr aðgerðarleysi þáverandi ríkisstjórnar þegar þing kom saman (og var full ástæða til) en nú virðast fjölmiðlar ekki fjalla með sama hætti um aðgerðarleysi vinstri stjórnarinnar.

Ný forysta Framsóknarflokksins hefur talað fyrir lausnum á skuldavanda heimila og fyrirtækja síðasta árið. Við höfum varað við aðgerðarleysinu og hvert það mun leiða íslenskt þjóðfélag. Við höfum kallað eftir samvinnu og samstarfi við stjórnarmeirihlutann en ekkert hefur verið hlustað á okkar sjónarmið. Það er orðið fullreynt að núverandi stjórnarflokkar ætli að iðka einhver samvinnustjórnmál. Vinnubrögðin breytast ekkert. Því miður virðast fjölmiðlar (flestir hverjir) ekki ætla að veita stjórninni það aðhald sem nauðsynlegt er í núverandi efnahagsástandi.

Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins

Senda grein Prenta grein