Innan Framsóknarflokksins starfa sjö málefnahópar. Í hópunum er rædd stefna flokksins í hverjum málaflokki, unnið að stefnumótun þeirra í samræmi við tilhögun málefnaundirbúnings fyrir flokksþing, auk þess sem einstök mál eru tekin fyrir og rædd.Í hópunum eru auk almennra flokksfélaga þeir þingmenn sem sæti eiga í þeim þingnefndum sem fjalla um viðkomandi málaflokka og fulltrúar frá málefnanefnd flokksins.Eru flokksmenn hvattir til að taka þátt í málefnastarfinu og geta áhugasamir skráð sig í hópana hér að neðan.