Norðausturkjördæmi hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.
Kjósendur á kjörskrá 2007 í Norðausturkjördæmi voru 27.888 talsins, þar af 14.152 karlar og 13.736 konur. Að baki hverju þingsæti voru 2.789 kjósendur.