Norðvesturkjördæmi nær frá Hvalfirði í suðri og að Tröllaskaga í austri. Kjördæmið hefur 9 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.
Kjósendur á kjörskrá 2007 í norðvesturkjördæmi voru 21.126 talsins, þar af 10.886 karlar og 10.240 konur. Að baki hverju þingsæti voru 2.347 kjósendur.