Á þínu svæði
Reykjavík
2. janúar 2009
Nýr framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins

Hrólfur Ölvisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins og tók hann formlega til starfa 1. janúar.

Hrólfur hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Eiðfaxa hf. sem gefur út samnefnt alþjóðlegt tímarit um íslenska hestinn.  Hann hefur verið virkur félagi í Framsóknarflokknum s.l. 30 ár og verið fulltrúi í miðstjórn flokksins um árabil og var á árum áður m.a. framkvæmdastjóri Sambands ungra framsóknarmanna.  Hrólfur hefur gengt  fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn.  Hann var framkvæmdastjóri dagblaðsins Tímans frá 1988-1993 og sat sem fulltrúi flokksins í bankaráði Búnaðarbanka Íslands frá 1998-2001.  Jafnframt hefur Hrólfur gengt fjölmörgum opinberum trúnaðarstörfum svo sem stjórnarformennsku í Brunamálastofnun frá 1997-2001, fyrsti formaður stjórnar Vinnumálastofnunar frá 1998-2007, stjórnarformaður Innkauparáðs Reykjavíkurborgar frá 2003-2005 og í siðanefnd Blaðmannafélags Íslands frá 1996-1998.

Á háskólaárum sínum sat Hrólfur sem fulltrúi í stúdentaráði fyrir Félag umbótasinnaða stúdenta og jafnframt sem fulltrúi stúdenta í stjórn Lánsjóðs íslenskra námsmanna frá 1984-1986.
 
Hrólfur Ölvisson, er 49 ára og kvæntur Irmu Sjöfn Óskarsdóttur, presti og verkefnastjóra á Biskupsstofu.  Hrólfur og Irma eiga tvær dætur.

Senda grein Prenta grein
Eldri fréttir
27. ágúst 201036. sambandsþing SUF í Borgarnesi 25.-26. september 2010
26. ágúst 2010Skipan skipulagsnefndar Framsóknarflokksins
21. júlí 2010Dregið í happadrætti framsóknarmanna í Reykjavík
20. júlí 2010Endurskoðun flokksstarfs
6. júlí 2010Sjávarútvegsnefnd Framsóknarflokksins
28. júní 2010Sumarlokun skrifstofu Framsóknarflokksins 2010
13. júní 2010Til hamingju með daginn SUFarar!
27. maí 2010Hvar áttu að kjósa?
27. maí 2010Erlendir ríkisborgarar með kosningarétt
27. maí 2010Sveitarstjórnarkosningar 2010
 
Allar fréttir
Dagbókin framundan
11. sep. 2010
Opin dagskrá á vegum Landssambands framsóknarkvenna
25. sep. 2010
36. sambandsþing SUF í Borgarnesi
Allir viðburðir
Málefni
Efnahagur
Fjölskyldur
Lýðræði
Atvinnulíf
Þekking
 
Okkar fólk á blogginu
8. september 2010
Vigdís Hauksdóttir
- þingmannanefndin og utanríkisráðherrakvíði ...
30. ágúst 2010
Eygló Þóra Harðardóttir
Að fá svör frá framkvæmdavaldinu...
20. ágúst 2010
Einar Skúlason
Kæru foreldrar og forráðamenn
13. ágúst 2010
Gestur Guðjónsson
Furðulegar nornaveiðar í gúrkutíð
26. júlí 2010
Hallur Magnússon
Aðdragandi, innleiðing og áhrif breytinga á útlánum Íbúðalánasjóðs 2004
 
Framsókn á netinu