Jafnréttisfulltrúi Framsóknarflokksins er flokksfélögum, kjördæmisráðum, þingflokki, framkvæmdastjórn og öllum félagsmönnum til ráðgjafar og aðstoðar í jafnréttismálum. Fulltrúinn vinnur að leiðréttingu á stöðu kvenna og karla í starfi á vegum flokksins í nánu samstarfi við stofnanir flokksins og stjórnmálastarfi á vegum hans innan stjórnkerfisins.
Jafnréttisfulltrúinn er jafnframt formaður jafnréttisnefndar flokksins. Jafnréttisnefndin hefur það hlutverk að fylgja eftir jafnréttisáætlun flokksins. Í jafnréttisnefndinni sitja fulltrúar frá LFK, SUF og þingflokki auk framkvæmdastjórnar flokksins.
Skv. lögum Framsóknarflokksins skal hlutur hvors kyns ekki vera lægra en 40% við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins sem og við val á framboðslista hans.
Staða jafnréttisfulltrúa er ólaunuð.
Hæfisskilyrði:
Reynsla af flokks- og félagsstarfi í Framsóknarflokknum.
Hafa brennandi áhuga á jafnréttismálum.
Kostur að hafa reynslu af jafnréttismálum, en ekki skilyrði.
Félagi í Framsóknarflokknum.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 19. janúar nk.
Umsóknir sendist á hrolfur@framsokn.is. Frekari upplýsingar veitir formaður Landsstjórnar, Eygló Harðardóttir, 895 5719 og framkvæmdastjóri flokksins, Hrólfur Ölvisson, 540 4300.