Björg Reehaug Jensdóttir var á fundi landsstjórnar Framsóknarflokksins ráðin sem jafnréttisfulltrúa Framsóknarflokksins. Björg Reehaug er með diplómagráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í uppeldis- og menntunarfræði við menntavísindasvið sama skóla. Björg Reehaug er í stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar, situr í miðstjórn Framsóknarflokksins og í framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna.
Jafnréttisfulltrúa Framsóknarflokksins er ætlað að vera flokksfélögum, kjördæmissamböndum, þingflokki, framkvæmdastjórn og öllum félagsmönnum til ráðgjafar og aðstoðar í jafnréttismálum. Jafnréttisfulltrúinn vinnur að leiðréttingu á stöðu kvenna og karla í starfi á vegum flokksins í nánu samstarfi við stofnanir flokksins og stjórnmálastarfi á vegum hans innan stjórnkerfisins.
Jafnréttisfulltrúi er jafnframt formaður jafnréttisnefndar flokksins. Jafnréttisnefndin hefur það hlutverk að fylgja eftir jafnréttisáætlun flokksins. Í jafnréttisnefndinni sitja fulltrúar frá LFK, SUF og þingflokki auk framkvæmdastjórnar flokksins.
Björg Reehaug Jensdóttir er boðin hjartanlega velkomin til starfa og er vænst mikils af störfum hennar nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.