Á þínu svæði
Reglur kjörfundar

Reglur um kjörfund Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna vals á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2010

Kjörfundur skal haldinn 28. nóvember 2009. Ekki verður hægt að kjósa utan kjörfundar.

Þátttaka á kjörfundi – kjörskrá
Þátttaka á kjörfundi er heimil öllum félagsmönnum í Framsóknarfélögunum í Reykjavík. Skrifstofa Framsóknarflokksins gefur út kjörskrá þann 18. nóvember sem byggð er á skráningu á skrifstofu flokksins. Þeir sem hafa skilað inn skriflegum inngöngubeiðnum í félög flokksins fyrir kl. 17:00 föstudaginn 13. nóvember eða skráð sig með netskráningu fyrir miðnætti laugardaginn 14. nóvember og staðfest hana fyrir kl. 17:00 mánudaginn 16. nóvember 2009.

Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita um mætingu á kjörfundinn til skrifstofu Framsóknarflokksins, fyrir lokun hennar kl. 17:00 þriðjudaginn 23. nóvember n.k. með tölvupósti á netfangið framsokn@framsokn.is eða í síma 540-4300.

Val frambjóðenda og réttur þeirra
Niðurstöður kjörfundar eru bindandi fyrir 12 efstu sætin þó að teknu tilliti til ákvæða um jafnrétti kynjanna og skulu frambjóðendur valdir sem hér segir:

Kosning verður í 12 efstu sæti listans á kjörfundi sem haldinn verður 28. nóvember 2009 og er hún bindandi. Kosningar skv. reglum þessum skulu vera skriflegar og leynilegar.

Frambjóðendur skulu vera félagar í Framsóknarflokknum og uppfylla kjörgengisskilyrði sveitarstjórnarlaga. Frestur til að tilkynna um framboð rennur út á miðnætti laugardaginn 14. nóvember 2009. Þeir sem gefa kost á sér skulu tilkynna það skriflega til kjörnefndar, annað hvort með tölvupósti á netfangið reykjavik@framsokn.is eða til skrifstofu Framsóknarflokksins, Hverfisgötu 33, 101 Reykjavík, merkt „Kjörnefnd Framsóknarflokksins í  Reykjavík“. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna frambjóðendur til viðbótar telji hún þess þörf, að fengnu samþykki þeirra, fram að hádegi þriðjudaginn 17. nóvember 2009.

Með framboðstilkynningu skal hver frambjóðandi skila að hámarki 400 orða texta á rafrænu formi þar sem frambjóðandi kynnir sjálfan sig og greinir frá helstu baráttumálum sínum, ásamt mynd á rafrænu formi sem er að lágmarki 1 MB (megabyte) að stærð. Þessar upplýsingar verða birtar í kynningarriti um frambjóðendur sem gefið verður út fyrir kjörfundinn.

Kynning á frambjóðendum skal vera sameiginleg og á vegum KFR. Sameiginlegt kynningarrit verður gefið út. Kostnaði við útgáfuna verður dreift jafnt í samræmi við fjölda frambjóðenda, en þó munu þeir sem bjóða sig fram í tvö efstu sætin bera tvöfaldan kostnað. Auk þess verður haldinn sameiginlegur kynningarfundur allra frambjóðenda vikuna fyrir kjörfund. Önnur útgáfa og auglýsingar á vegum frambjóðenda er óheimil, en þeim er frjálst að kynna sig á persónulegum heimasíðum, með greinaskrifum o.s.frv. Frambjóðendur skulu að loknum kjörfundi skila Ríkisendurskoðun upplýsingum um kostnað vegna framboðs síns í samræmi við lög um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra.

Frambjóðendur munu eftir hádegi miðvikudaginn 18. nóvember 2009 fá afhent kjörskrárgögn og prófkjörsreglur og skulu þá undirrita yfirlýsingu þess efnis að þeir hafi kynnt sér reglurnar og muni fara eftir þeim. Hverjum frambjóðanda er heimilt að skipa sér umboðsmann sem getur verið viðstaddur atkvæðagreiðslu á kjörfundinum og talningu atkvæða til þess að gæta réttar og hagsmuna frambjóðandans.

Almennt um framkvæmd kosninga

Framkvæmd kosninga
Kjörnefnd sér um framkvæmd kosninga með aðstoð þeirra, sem hún kveður til. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum með mynd og vera á kjörskrá til að fá afhentan atkvæðaseðil. Atkvæðaseðli skal skilað í læstan kjörkassa.

Talning atkvæða
Kjörnefnd hefur umsjón með talningu atkvæða. Í upphafi kjörfundar verða starfsmenn í talningu tilnefndir. Talning getur hafist þegar allir kjörkassar og gögn, sem þeim eiga að fylgja, hafa borist í hendur kjörnefndar.

1. Meirihlutakosning í efstu sex sæti listans
Kosið er um hvert sæti fyrir sig. Fyrst er kosið um fyrsta sætið og séu fleiri en einn í framboði í það sæti er kosið á milli þeirra frambjóðenda. Ef tveir bjóða sig fram er kosið milli þeirra þannig að sá sem fær fleiri atkvæði hlýtur sætið. Ef þrír eða fleiri bjóða sig fram er kosið milli allra frambjóðenda og ef enginn þeirra hlýtur meira en 50% gildra atkvæða er kosið aftur milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. Hlýtur sá sem fær fleiri atkvæði viðkomandi sæti. Sama aðferð skal viðhöfð í sæti 2 til 6 og 50% reglan viðhöfð.  Ef frambjóðandi nær ekki því sæti sem hann sóttist eftir getur hann boðið sig fram í önnur sæti á kjörfundinum.

Kjörseðill.
Kosning skal fara þannig fram að kjósandi skrifar fullt nafn þess frambjóðanda sem hann kýs á þar til gerðan kjörseðil.  Kjörnefnd hefur úrskurðarvald varðandi vafaatkvæði. Ef vilji kjósanda er ljós hvaða frambjóðanda hann kjósi er kjörnefnd heimilt að taka það sem gilt atkvæði þrátt fyrir að fullt nafn sé ekki ritað.

Birting úrslita. Niðurstöður atkvæðagreiðslu skal tilkynna að loknu kjöri í hvert sæti. Fram komi hversu mörg atkvæði og hversu hátt hlutfall hver frambjóðandi fær í viðkomandi sæti.

2. Prófkjörsleið í sæti 7 til 12
Kosið skal um sæti 7 til 12 í einni kosningu. Prófkjörsseðill. Kjörnefnd lætur prenta prófkjörsseðla þegar liggur fyrir hvaða frambjóðendur eru í kjöri. Röðun nafna á prófkjörsseðli skal vera í stafrófsröð.

Kosning í sæti 7-12 skal fara þannig fram, að kjósandi kýs frambjóðanda í ákveðið sæti framboðslistans með því að setja tölustaf fyrir framan nöfn manna á kjörseðlinum og tölusetja í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi framboðslistann. Merkja skal við sex frambjóðendur með tölunum 7 til 12. Kjörseðill er þá aðeins gildur að það hafi verið gert.

Birting úrslita. Að loknu prófkjöri skal tilkynna hverjir hafa fengið atkvæði í hvert einstakt sæti og hve mörg. Að talningu lokinni hlýtur sá maður sjöunda sætið sem flest atkvæði fær í það sæti. Áttunda sæti hlýtur sá sem ekki hefir hlotið sjöunda sætið en hefur flest atkvæði þegar saman eru lögð atkvæði hans í 7. og 8. sæti. Níunda sæti hlýtur sá sem ekki hefir hlotið 7. eða 8. sæti en hefur flest atkvæði þegar saman eru lögð atkvæði hans í 7., 8. og 9. sæti. Síðan hljóta menn önnur sæti í kjörinu með sama hætti.

3. Uppstilling neðar þar til fjölda sæta er náð.
Kjörnefnd stillir upp frambjóðendum í sæti 13-30 á framboðslistanum sem uppfylla skilyrði um kjörgengi og skal kynna uppstillingu sína fyrir kjörfundinum að lokinni kosningu í sæti 1-12.

Ákvæði um jafnrétti kynjanna
Til að tryggja jafnræði kynjanna á framboðslista skal tryggt að í efstu 6 sætum listans séu að lágmarki 3 af öðru kyninu og að í efstu 12 sætum séu að lágmarki 6 af öðru kyninu. Kjörnefnd hefur heimild til að breyta röð frambjóðenda til að uppfylla ákvæði um jafnrétti kynjanna.

Kjörnefnd

Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Reykjavík skipa fimm einstaklingar kjörnir á kjördæmaþingi KFR 17. október 2009. Formaður kjörnefndar er Snorri Þorvaldsson.

Kjörnefnd annast framkvæmd kjörfundar og setur sér starfsreglur. Kjörnefnd er bundin trúnaði um verk sitt.

Kjörfund skal auglýsa opinberlega á heimasíðu flokksins, í rafrænu fréttabréfi og í fjölmiðlum skv. nánari ákvörðun kjörnefndar.

Kjörnefnd skili skýrslu til stjórnar KFR um störf sín sem skal varðveitast á skrifstofu Framsóknarflokksins.

Kærumeðferð
Rísi ágreiningur um hvernig skilja beri reglur þessar sker stjórn KFR úr. Áfrýja má þeim úrskurði til laganefndar. Úrskurður stjórnar KFR gildir þó þar til laganefnd hefur fjallað um málið.