Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík (FFKR) var stofnað árið 1945. Tilgangur félagsins er að efla þátttöku félaga þess í störfum flokksins og vinna að kynningu félagsmanna, vinna að því að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og leitast við að koma konum í örugg sæti á framboðslistum flokksins.
FFKR starfar í samræmi við stefnu og markmið Framsóknarflokksins. Félagi í FFKR getur orðið hver kona sem er félagsmaður í Framsóknarflokknum, er orðin 16 ára og vill vinna að málefnum félagsins.
Stjórn FFKR er skipuð formanni, 4 aðalmönnum og tveim til vara. Aðalfundur er haldinn árlega og hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Stjórn FFKR - kjörin á aðalfundi 30. september 2009