Veftré Hafðu samband
Á þínu svæði
Kjördæmið
Reykjavíkurkjördæmi norður og suður

Reykjavík skiptist í tvö kjördæmi, Reykjavik norður og suður. Hvort kjördæmið hefur 11 sæti á Alþingi, þar af 2 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.

Kosningar 2009

Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag eru 87.532 kjósendur alls á kjörskrárstofni í Reykjavík.

Meðfylgjandi eru uppdrættir sem sýna mörk milli Reykjavíkurkjördæma með blárri línu og mörk kjörsvæða í Grafarholti:

Kjörhverfi og kjörstaðir við alþingiskosningarnar 25. maí 2009

Mörk kjörsvæða í Grafarholti við alþingiskosningarnar 25. maí 2009

Reykjavíkurkjördæmi norður
Grafarholtshverfi (póstnúmer 113), austan Vesturlandsvegar, skiptist því milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla. Ingunnarskóli verður sem fyrr kjörstaður fyrir bæði kjördæmin í Grafarholti. Þá tilheyrir Kjalarnes (póstnúmer 116)Reykjavíkurkjördæmi norður.

Þingmenn 11
- kjördæmakjörnir 9
- jöfnunarmenn 2

Kjósendur á kjörskrá 2009 í Reykjavík norður eru 43.784 kjósendur eða 50,02% af fjölda kjósenda í Reykjavík.

Kjósendur á kjörskrá 2007 í Reykjavík norður voru 43.775 talsins, þar af 21.445 karlar og 22.330 konur. Að baki hverju þingsæti voru 3.980 kjósendur.

Reykjavíkurkjördæmi suður
Kjósendur sem búa við sunnanverða Hringbraut eða Miklubraut verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem búa við þessar götur að norðanverðu eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Þingmenn 11
- kjördæmakjörnir 9
- jöfnunarmenn 2

Kjósendur á kjörskrá 2009 í Reykjavík suður eru 43.748 kjósendur eða 49,98% af fjölda kjósenda í Reykjavík.

Kjósendur á kjörskrá 2007 í Reykjavík suður voru 43.398, þar af 21.235 karlar og 22.163 konur.  Að baki hverju þingsæti voru 3.945 kjósendur.

Reykjavíkurborg

Mannfjöldi 1. janúar 2009 119.547

101 Reykjavík     15.110
103 Reykjavík     1.770
104 Reykjavík     9.189
105 Reykjavík     16.100
107 Reykjavík     9.327
108 Reykjavík     12.146
109 Reykjavík     12.298
110 Reykjavík     10.922
111 Reykjavík     8.820
112 Reykjavík     17.390
113 Reykjavík     5.457
116 Kjalarnes     882
150 Reykjavík     138

Heimild: Hagstofa Íslands

Dagbókin framundan
18. mar. 2010
Öflug atvinnustefna – Orkurík borg
18. mar. 2010
Velferð í fyrirrúmi
20. mar. 2010
Málefnaþing framsóknarmanna í Reykjavík
Allir viðburðir
Málefni
Efnahagur
Fjölskyldur
Lýðræði
Atvinnulíf
Þekking
 
Okkar fólk á blogginu
18. mars 2010
Vigdís Hauksdóttir
Lagaskrifstofa Alþingis
17. mars 2010
Gestur Guðjónsson
Loksins loksins - vonandi verður horft til samvinnuhugsjónarinnar
12. mars 2010
Eygló Þóra Harðardóttir
Lesist!
9. mars 2010
Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
Er bloggið dautt?
17. desember 2009
Salvör Gissurardóttir
Harmur almennings
 
Framsókn á netinu