Við viljum tryggja velferð Reykvíkinga, standa vörð um starfsemi skólanna í borginni og þá þjónustu sem þar er í boði auk þess að efla félagslegt stuðningskerfi við aldraða, atvinnulausa og þá hópa sem minna mega sín.
Við viljum sækja fram í atvinnumálum, umhverfis- og samgöngumálum.
Við viljum áfram gæta aðhalds í fjármálum borgarinnar og auka enn hagkvæmni og skilvirkni í stjórn hennar. Við sjáum ekki ástæðu til skattahækkana og munum ekki hækka gjaldskrár grunnþjónustu umfram verðlag. Áfram verður forgangsraðað í þágu velferðarþjónustu, barna, aldraðra og annarra viðkvæmra hópa.
Atvinna – fleiri störf!
Við ætlum að...
...stórauka viðhald bygginga í eigu Reykjavíkurborgar, efla ferðamannaborgina Reykjavík og ráðast í fjölbreytt atvinnuátaksverkefni fyrir mismunandi aldurshópa.
...bjóða upp á sveigjanlegri orkusölusamninga og setja í forgang fyrirtæki sem eru umhverfisvæn og skapa mörg störf.
...endurvekja Aflvaka – atvinnuþróunarfélag Reykjavíkur, stofna samstarfsvettvang um sóknarfæri í atvinnulífi borgarinnar og setja á stofn frumkvöðlasetur unga fólksins með áherslu á ferðaþjónustu, innlendan iðnað og tækninýjungar.
Menntun – börnin í forgang!
Við ætlum að...
...tryggja að kennsla í grunnskólunum skerðist ekki og nemendur bæti sig á alþjóðlegan mælikvarða, útrýma ólæsi í borginni, auka kennslu íslensku sem annars máls í skólakerfinu og standa vörð um sérkennslu.
...tryggja rétt leikskólabarna til náms og leiks í leikskólanum, stytta biðlista á leikskóla með því að innleiða hverfaforgang að hluta og auka samvinnu milli allra skólastiga.
...hækka frístundakortið í kr. 40.000 fyrir lok kjörtímabilsins, auka samþættingu frístundastarfs og skóla, gefa hafragraut og lýsi í skólum á morgnana og styrkja foreldra enn frekar í uppeldishlutverki sínu og auka foreldrasamstarf.
Velferð – enginn svangur eða án húsaskjóls í Reykjavík!
Við ætlum að...
...tryggja viðeigandi búsetuúrræði fyrir heimilislausa og auka aðgengi að mataraðstoð í samstarfi við félaga-samtök, tryggja öldruðum fjölbreytta þjónustu og gera þeim kleift að búa sem lengst á heimili sínu og hvetja til stofnunar húsnæðissamvinnufélaga og skapa þannig fjölbreyttara búsetumynstur í borginni.
...taka vel á móti öllum nýjum íbúum borgarinnar og bjóða upp á persónuleg viðtöl á þjónustumiðstöðvum, standa vel að flutningi málefna fatlaðra og aldraðra til borgarinnar og efla þjónustumiðstöðvarnar.
...skjóta sterkari stoðum undir íbúalýðræði og auka áhrif hverfisráða í stjórnsýslunni, tryggja að undirskriftir 5% Reykvíkinga á öllum aldri geti komið máli á dagskrá borgarstjórnar.
Umhverfi – græna byltingu í borgina okkar!
Við ætlum að...
...fegra öll hverfi borgarinnar og byrja á Breiðholtinu og Miðborginni, auka flokkun á sorpi og meðhöndla úrgang betur, vinna heildarskipulag fyrir vatnasvið Elliðaánna og Úlfarsár, þétta byggð án þess að ganga á græn svæði og gefa áhugahópum kost á að taka svæði í borgarlandinu í fóstur.
...auka þjónustu við þá sem ferðast á umhverfisvænan hátt og bæta framboð umhverfisvænna orkugjafa, leggja áherslu á hóflegan umferðarhraða í hverfunum, vinna að sátt um bætta þjónustu strætó og krefjast þess að Reykjavíkurborg fái sanngjarnan hlut í uppbyggingu vegakerfis í landinu.
...efla holla hreyfingu og útivist, til dæmis með bættri aðstöðu til hjólreiða, hestamennsku, sjósunds og gönguferða, stórauka möguleika á skíðaiðkun með snjóframleiðslu og hvetja íþróttafélögin til að opna enn frekar dyrnar fyrir þeim sem ekki stefna á afrek í keppnisíþróttum.