Atvinna
Atvinna – fleiri störf!

Við ætlum að...
Stórauka viðhald
Framkvæmdir sem auka ekki rekstrarkostnað borgarinnar til lengri tími eru heppilegar til að nýta vinnufúsar hendur. Stóraukið viðhald bygginga í eigu Reykjavíkurborgar er gott dæmi um slík verkefni, enda er víða þörf á að bæta t.d. íbúðarhúsnæði í eigu borgarinnar og  skólahúsnæði. Fegrun og viðhald opinna svæða jafnt og lóða við skóla borgarinnar er annað dæmi um framkvæmdir sem kalla á tímabundna vinnu sem eykur notagildi svæðanna . 
Efla ferðamannaborgina Reykjavík
Reykjavík á að vera meira en  biðstofa fyrir ferðamenn sem eru á leiðinni út á land og næturlífsparadís. Við viljum koma á virku samráði milli ferðaþjónustuaðila og borgarinnar. Reykjavík hefur upp á að bjóða fjölbreytt viðfangsefni fyrir ferðamenn hvort sem horft er til sögunnar, náttúru eða menningar. Sérstaklega má horfa til barna og fjölskyldufólks. Í því samráði á borgin líka að koma inn sem virkur aðili og finna leiðir til að auka tekjur sínar af ferðamönnum með beinum og óbeinum hætti.
Fjölbreytt atvinnuátaksverkefni fyrir mismunandi aldurshópa í samvinnu við ríkið. (Eggert setur inn af blaðinu punktana)
Sveigjanlegri orkusölusamninga
Þegar stórar og dýrar virkjanir eru byggðar, hafa lánveitendur krafist þess að hafa orkusölusamninga í hendi út lánstímann. Slíkir kaupendur eru ekki margir og hafa það helst verið álver sem hafa getað skuldbundið sig í svo langan tíma. Nú er tækifæri að bjóða upp á styttri orkusölusamninga sem geta hentað fjölbreyttari gerð fyrirtækja. Í vali á þeim fyrirtækjum er eðlilegt að setja í forgang fyrirtæki sem eru umhverfisvæn og skapa mörg störf.
...endurvekja Aflvaka – atvinnuþróunarfélag Reykjavíkur, samstarfsvettvang um sóknarfæri í atvinnulífi borgarinnar. Aðkoma Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar er mikilvæg í þróun atvinnulífsins, en samtal fyrirtækjanna innbyrðis og við borgina er ekki síður verðmætt. Á það hefur skort og er Aflvaki hugsaður sem regnhlífin yfir það starf. Leita allra leiða til að fá hingað til borgarinna fjölbreytta flóru fyrirtækja sem skapa ólík og fjölbreytt störf.

...setja á stofn frumkvöðlasetur unga fólksins með áherslu á ferðaþjónustu, innlendan iðnað og tækninýjungar. Þetta starf yrði unnið í samstarfi Hins Hússins og Aflvaka ásamt öðrum þeim aðilum sem áhuga hafa.