Við ætlum að... ...tryggja að kennsla í grunnskólunum skerðist ekki og reykvískir nemendur verði í fararbroddi þegar kemur að alþjóðlegum könnunum og samanburði í gæðum skólastarfs. Börn eiga rétt á að finna til öryggis í skólum borgarinnar og standa þarf vörð um vellíðan þeirra en það er lykillinn að bættum árangri. Hvert og eitt barn og unglingur á að fá tækifæri til að njóta hæfileika sinna, áhuga og reynslu. ...útrýma ólæsi í borginni, en ólæsi er falið vandamál sem hindrar fólk í að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Hver sá einstaklingur sem ekki nær innihaldi ritaðs máls getur ekki notið sín í samfélagi dagsins í dag. Kröfur umhverfisins kalla á góða lestrarfærni og því er það grundvallaratriði að bjóða íbúum Reykjavíkur upp á þjálfun í að auka lestrarfærni sína. ...auka kennslu íslensku sem annars móðurmáls í skólakerfinu, sem er ein grundvallarforsenda þess að þátttaka þeirra sem hafa íslensku sem annað mál í samfélaginu verði sem best. ...standa vörð um sérkennslu, enda sérstaklega mikilvægt að standa áfram vel við bakið á viðkvæmustu hópum samfélagsins. Sérkennsla eða stuðningur þarf að koma til strax í leikskóla og haldast upp í gegnum skólakerfið. ...tryggja rétt leikskólabarna til náms og leiks í leikskólanum, með öflugu faglegu starfi ...stytta biðlista á leikskóla með því að innleiða hverfaforgang að hluta og jafna þannig ásóknina í leikskólana, enda vannýtt leikskólapláss í ákveðnum hverfum borgarinnar, meðan langir biðlistar eru að öðrum. ...auka samvinnu milli allra skólastiga, leik- grunn- og framhaldsskóla. Hér er bæði átt við samvinnu eftir hverfum borgarinnar en einnig þarf að horfa á borgina sem eina heild. Ný lög um leik- og grunnskóla gefa aukin tækifæri til virkrar samvinnu eða samreksturs þvert á skólastig. ...hækka frístundakortið í kr. 40.000 fyrir lok kjörtímabilsins, standa vel að kynningu á þeim möguleikum sem frístundakortið býður upp á og tryggja að foreldrum standi til boða aðstoð við að sækja um og nýta kortið. .. auka samþættingu frístundastarfs og skóla en það er best tryggt með samstilltu átaki á vettvangi hverfa borgarinnar með aðkomu skóla, ÍTR og foreldra. Standa þarf vörð um frístundavagna sem flytja börn á milli skóla og frístundastarfs. ..gefa hafragraut og lýsi í skólum á morgnana og styrkja foreldra enn frekar í uppeldishlutverki sínu og auka foreldrasamstarf. Styrkja skólaráðin sem sk. lögum starfa í öllum grunnskólum og skólaráð leikskólanna.