Umhverfi
Umhverfi – græna byltingu í borgina okkar!

Við ætlum að...
fegra öll hverfi borgarinnar og byrja á Breiðholtinu og Miðborginni. Borginni verður að halda hreinni allt árið og um allt, líka í bakgarðinum. Hver og einn íbúi borgarinnar eða íbúafélög bera ábyrgð á sínu nærumhverfi en borgin skapar forsendur til viðhalds- og fegrunarverkefna.
auka flokkun á sorpi og meðhöndla úrgang betur. Sorpa er lykilfyrirtæki í því sambandi að ná framförum í meðhöndlun okkar á sorpi og verður þróunin að vera aðgengileg fyrir borgarbúa og sveigjanleg, þannig að hægt sé að bregðast við breyttum forsendum á hagkvæman hátt.
Vatnasvið Elliðaánna og Úlfarsár, sem eru perlur í borgarlandinu, þarf að skipuleggja með heildstæðum hætti, með áherslu á náttúruvernd og nýting þeirra til útivistar og fræðslu. Nauðsynlegt er að horfa á vatnasviðin í heild sinni, enda áhrif mannsins á lífríkið uppsafnaðar afleiðingar fjölda framkvæmda í tímans rás.
þétta byggð án þess að ganga á græn svæði. Þétting byggðar er forsenda fyrir því að halda uppi hagkvæmri þjónustu, almenningssamgöngur og einnig fyrir því að almenn þjónusta haldist í hverfunum.
gefa áhugahópum eða félagasamtökum kost á að taka svæði í borgarlandinu í fóstur. Borgin geri samning við hópinn og leggi til efni, en hópurinn leggur til vinnu. Þetta verður að gera með þeim hætti að þau svæði séu ávallt opin öllum borgarbúum.
...auka þjónustu við þá sem ferðast á umhverfisvænan hátt og bæta framboð umhverfisvænna orkugjafa, til dæmis með því að setja skilyrði um slíkt í starfsleyfi bensínstöðva
leggja áherslu á hóflegan umferðarhraða í hverfunum og hafa frumkvæði að því að stórir og fjölmennir vinnustaðir eins og Landspítalinn, HR, HÍ  og fjölmennir framhaldsskólar hefji ekki vinnudaginn allir  á sama tíma á morgnanna.  Með því móti má létta  álagi á umferðarkerfi borgarinnar.
vinna að sátt um bætta þjónustu strætó og krefjast þess af ríkinu að það komi að fjármögnun almenningssamgangna í landinu en það er  lágmark að ríkið sé ekki að hafa beinar tekjur af rekstri almenningssamgangna á sama tíma og stefnan er sett á umhverfisvænni samgöngur.
krefjast þess að Reykjavíkurborg fái sanngjarnan hlut í uppbyggingu vegakerfis í landinu, enda er ríkið að innheimta verulega vegskatta af þeim akstri sem fer fram á götum sem Reykjavíkurborg hefur staðið allan kostnað af.
...efla holla hreyfingu og útivist, til dæmis með bættri aðstöðu til hjólreiða, hestamennsku, sjósunds og gönguferða. Stórauka möguleika á skíðaiðkun með snjóframleiðslu og hvetja íþróttafélögin til að opna enn frekar dyrnar fyrir eldri borgurum og  þeim sem ekki stefna á afrek í keppnisíþróttum.