Velferð – enginn svangur eða án húsaskjóls í Reykjavík!
Við ætlum að... ...tryggja viðeigandi búsetuúrræði fyrir heimilislausa og halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið. ...auka aðgengi að mataraðstoð í samstarfi við félagasamtök og bjóða upp á hana víðar en í miðbænum. En grundvallarmarkmiðið er að fækka þeim íbúum borgarinnar sem þurfa á mataraðstoð að halda. ...tryggja öldruðum fjölbreytta þjónustu og gera þeim kleift að búa sem lengst á heimili sínu með öflugri þjónustu ...hvetja til stofnunar húsnæðissamvinnufélaga og skapa þannig fjölbreyttara búsetumynstur í borginni, með öflugri leigumarkaði. ...taka vel á móti öllum nýjum íbúum borgarinnar og bjóða þeim upp á persónuleg viðtöl á þjónustumiðstöðvum, hvort sem þeir eru að flytja utan af landi eða utan úr heimi til okkar. ...standa vel að flutningi málefna fatlaðra og aldraðra til borgarinnar og setja okkur metnaðarfulla stefnu í því sambandi. ...efla þjónustumiðstöðvarnar, sem eiga að vera burðarásinn í þjónustu við íbúa borgarinnar ...skjóta sterkari stoðum undir íbúalýðræði og auka áhrif hverfisráða í stjórnsýslunni, tryggja að undirskriftir 5% Reykvíkinga á öllum aldri geti komið máli á dagskrá borgarstjórnar.