Yfirlýsing frambjóðenda til borgarstjórnar 2010

Við ætlum að…

…starfa með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi og sýna þeim kurteisi, virðingu, trúnað og heiðarleika í viðmóti og umræðu.

…gegna störfum okkar af samviskusemi, trúmennsku og heiðarleika.

…hafa jafnrétti að leiðarljósi og vinna gegn fordómum og mismunun t.d. vegna kyns, þjóðernis, trúarbragða, aldurs, skoðana, kynhneigðar, kynþáttar, efnahags, fötlunar, ætternis eða stöðu að öðru leyti.