Suðurkjördæmi hefur 10 sæti á Alþingi, þar af 1 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.
Til kjördæmisins teljast sveitarfélögin Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grindavíkurbær, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Vogar, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.
Kjósendur á kjörskrá 2007 í Suðurkjördæmi voru 30.597 talsins, þar af 15.690 karlar og 14.907 konur. Að baki hverju þingsæti voru 3.060 kjósendur.