Á þínu svæði
Kjördæmið
Suðvesturkjördæmi

Suðvesturkjördæmi hefur 12 sæti á Alþingi, þar af 2 jöfnunarsæti. Núverandi kjördæmaskipan var samþykkt var með stjórnarskrárbreytingu árið 1999. Þá var ákveðið að hafa kjördæmi fæst sex en flest sjö, en áður voru kjördæmin átta talsins. Breytingin miðaði að því að draga úr misvægi atkvæða og laga hana að þróun búsetu í landinu.

Til kjördæmisins teljast sveitarfélögin Álftanes, Garðabær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Mosfellsbær og Seltjarnarneskaupstaður.

Kjördæmið er það fjölmennasta af kjördæmunum sex og er í daglegu tali nefnt Kraginn.

Kjósendur á kjörskrá 2007 í Suðvesturkjördæmi voru 54.584 talsins, þar af 26.991 karlar og 27.593 konur. Að baki hverju þingsæti voru 4.549 kjósendur.

Mannfjöldi 1. janúar 2009 81.704

Álftanes            2.518
Garðabær         10.358
Hafnarfjörður    25.850
Kjósarhreppur   196
Kópavogur        29.976
Mosfellsbær       8.403
Seltjarnarnes     4.403

Heimild: Hagstofa Íslands

Dagbókin framundan
11. feb. 2012
Sambandsþing SUF 2012
25. feb. 2012
Sveitarstjórnarráðstefna Framsóknar
Allir viðburðir
Málefni
Efnahagur
Fjölskyldur
Lýðræði
Atvinnulíf
Þekking
 
Okkar fólk á blogginu
3. febrúar 2012
Eygló Þóra Harðardóttir
Dómsúrskurður og vörslusviptingar?
20. janúar 2012
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Landsdómur
 
Framsókn á netinu