Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna 25. apríl n.k. er hafin. Ef kjósandi kemst ekki á kjörstað á kjördag getur hann greitt atkvæði utankjörfundar. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á kosning.is.
Hægt er að kjósa utankjörfundar hjá hreppstjórum og sýslumönnum um land allt. Kjósendur sem staddir eru erlendis geta kosið á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun Utanríkisráðuneytisins.
Framsóknarflokkurinn veitir nánari upplýsingar vegna kosningar utankjörfundar í síma 540 4300 eða á netfanginu framsokn@framsokn.is.
Íslendingar sem búið hafa erlendis í meira en 8 ár geta sótt um kosningarétt til Þjóðskrár fyrir 25. mars. Umsóknareyðublöð er að finna á vef Þjóðskrár á slóðinni www.thjodskra.is/eydublod/kjorskra.
Hvernig fer atkvæðagreiðslan fram?
Kjörgögn eru: kjörseðill, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslag, og stimplar með listabókstöfum.
Listabókstafur Framsóknarflokksins er B.
Nauðsynlegt er að hafa meðferðis skilríki með ljósmynd og framvísa á kjörstað.
Kjörgögn afhent
Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa og má hann geta þess hvernig hann vill hafa röðina á listanum. Mikilvægt er að gera engar merkingar við aðra lista eða annars staðar á kjörseðil því þá telst atkvæðið ógilt.
Kjósandi brýtur saman kjörseðilinn þannig að letrið snúi inn ogsetur atkvæðið í kjörseðilsumslagið.
Hann undirritar fylgibréf í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna.
Kjörseðilsumslag og fylgibréf eru lögð í sendiumslagið og því lokað.
Sendiumslagið skal síðan áritað til sýslumannsins, hreppstjórans eða kjörstjórnarinnar í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig standa á kjörskrá. Á sendiumslagið skal og rita nafn kjósanda, kennitölu og lögheimili.
Stimpill er settur á umslag (samkvæmt upplýsingum dóms-og kirkjumálaráðuneytis er stimpill skilyrði til að atkvæði teljist gilt, en yfirkjörstjórn á hverjum stað úrskurðar um gildi atkvæðis vanti stimpilinn).
Ef kosið er utan kjördæmis kjósanda, innanlands eða erlendis skulu kjósendur sjálfir annast og kosta sendingu atkvæðisbréfs síns. Kjörstjóra er þó skylt ef kjósandi óskar þess að koma bréfinu í póst. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá.
Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur viðkomandi kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag svo unnt sé að taka það til greina við kosninguna. Utankjörfundaratkvæðið er þannig á ábyrgð kjósanda þar til það hefur borist viðkomandi kjörstjórn.
Atkvæði má koma með eða senda til Framsóknarflokksins, Hverfisgötu 33, 101 Reykjavík og við komum því til skila. Einnig má hafa samband við kosningaskrifstofur okkar víðsvegar um landið. Á kjördag sjálfan er þó ráðlagt að stíla atkvæðin á yfirkjörstjórn þar sem viðkomandi er á kjörskrá.
Erlendis
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 25. apríl 2009 er hafin og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.
Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir.
Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.