Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 29. maí 2010
Almennar sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl en frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí.
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur nú í fyrsta sinn umsjón með framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, eftir að forræði þessa málaflokks fluttist til ráðuneytisins frá samgönguráðuneytinu 1. október 2009. Ráðuneytið annast því framkvæmd allra almannakosninga hér á landi.
Kosningarréttur Samkvæmt lögum um sveitarstjórnarkosningar eiga eftirtaldir, sem fæddir eru 29. maí 1992 og fyrr, kosningarrétt til sveitarstjórnar 29. maí 2010:
íslenskir ríkisborgarar sem skráðir eru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 8. maí 2010.
íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til hinna Norðurlandanna vegna náms á grundvelli Norðurlandasamnings um almannaskráningu og eru þar enn skráðir 8. maí 2010.
danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem lögheimili hafa átt hér á landi í þrjú ár samfellt frá 29. maí 2007 og eru skráðir með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi 8. maí 2010.
aðrir erlendir ríkisborgarar sem lögheimili hafa átt hér á landi í fimm ár samfellt frá 29. maí 2005 og eru skráðir með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi 8. maí 2010.
Kjörgengi Hver sá sem á kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningar getur boðið sig fram til setu í sveitarstjórnum, hafi hann ekki verið sviptur lögræði.
Kjörskrá Þjóðskrá sér um gerð kjörskrárstofna fyrir allar almannakosningar hér á landi. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna mun Þjóðskrá, eins og gert var í fyrsta sinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars 2010, veita rafrænan aðgang að kjörskrá á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, kosning.is, eins fljótt og verða má eftir viðmiðunardag kjörskrár 8. maí 2010. Þar munu kjósendur geta, með því að slá inn kennitölu sína, fengið upplýsingar um lögheimili og sveitarfélag og Reykvíkingar fá að auki upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Sveitarfélög auglýsa kjörstaði hvert fyrir sig.