Hafnarfjörður
Stefnuskrá

Framsókn í Hafnarfirði á Facebook

Frá  okkar sjónarhóli

Kjörtímabilið  2010 til 2014 mun einkennast af mikilli varnarbaráttu á mörgum sviðum. Áföll síðustu missera þar sem margar máttarstoðir Íslensks samfélags hafa brostið kalla á nýtt hugarfar og breytt vinnubrögð til að stuðla að öflugri uppbyggingu og endurreisn.

Fyrsta verk nýrrar bæjarstjórnar verður að sýna fram á með ótvíræðum hætti hvernig hún ætlar að bregðast við skýrri og háværri kröfu samfélagsins um bætt vinnubrögð og betri stjórnunarhætti.

Framsókn telur lykilinn að því að ná aftur trausti almennings og skapa góða samstöðu bæjarbúa liggja í samvinnu allra bæjarfulltrúa.  

Setja þarf skýrar vinnureglur sem tryggja að virðing sé borin fyrir skoðunum og tillögum allra. Einungis þannig er hægt að tryggja að styrkleikar allra bæjarfulltrúa fái notið sín og að tengingar og boðleiðir við íbúa bæjarins séu virkar.

Skoða á  hvert mál á hlutlægan hátt og fordómalaust. Ákvarðanir eru síðan teknar eftir ítarlega skoðun og á þeim forsendum sem vönduð umfjöllun leiðir af sér.

Okkar skoðun er sú  að stjórnmálamenn eigi ekki að láta stjórnast af úreltum flokkshagsmunum. Í öllum störfum bæjarfulltrúa eiga heildarhagsmunir Hafnfirðinga að ganga framar flokks- og einstaklingshagsmunum.

Framsókn í Hafnarfirði er tilbúin að skoða hlutina frá nýju sjónarhorni. Stjórnmálin þurfa að taka breytingum og komast þannig upp úr þeim farvegi sem hefðir og venjur síðustu áratuga hafa leitt þau í.

Lýðræðisleg og fagmannleg stjórnsýsla:

Krefjandi verkefni bíða þeirra fulltrúa sem setjast í bæjarstjórn. Ekki síður þarf að vinna traust og virðingu almennings með heiðarlegum og réttlátum vinnubrögðum. Við leggjum áherslu á:

  • Markvissa samvinnu allra kjörinna fulltrúa
  • Ábyrga stjórnunarhætti
  • Upplýsta ákvarðanatöku - Gagnsæi
  • Skynsamlegar lausnir - Ráðdeild - Hagsýni
  • Lýðræðislega og faglega stjórnsýslu
  • Heilbrigða gagnrýni og siðferði - Heiðarleika
  • Jafnrétti kynjanna

 

Fjármál:

Vanda þarf til verka í allri fjármálastjórn bæjarins.  Upplýsingaflæði um stöðu bæjarsjóð þarf að vera ábyggilegt og áreiðanlegt. Nú þegar þarf að fara í markvissar aðgerðir hvað varðar endurfjármögnun og endurskipulagningu á skuldum. Rekstur bæjarsjóðs þarf að vera í stöðugri skoðun, þar sem velt er við hverjum steini í leit að hagræðingu til að lágmarka útgjöld. Framsókn mun leita skynsamlegra leiða til að fá þær fjárfestingar sem þegar hefur verið ráðist í til að skila tekjum í bæjarsjóð. Við leggjum áherslu á:

  • Ábyrga fjármálastjórn
  • Endurfjármögnun skulda
  • Sanngjarna skattheimtu
  • Að leitað verði leiða til að lækka álögur á bæjarbúa
  • Hagsýni og fyrirhyggju
  • Faglegan undirbúning og áætlanagerð
  • Eftirfylgni

 

Velferðarmál:

Hafnarfjörður er leiðandi á mörgum sviðum velferðarmála. Framsókn telur að  með vönduðum vinnubrögðum getum við náð fram hagkvæmari rekstri velferðarþjónustunnar án þess að falla frá  metnaðarfullum markmiðum. Skoða þarf vel hvort hægt sé að nýta betur þá þekkingu og þann mannauð sem fyrir hendi. Við leggjum áherslu á:

  • Aukna samþættingu/samvinnu á milli sviða t.d. fjölskyldusvið og fræðslusvið
  • Að tryggja grunnþjónustu við fatlaða, þannig að þeir geti lifað fullgildu lífi á eigin forsendum
  • Að tryggja þjónustu við aldraða, bæði heilsufarslega og félagslega
  • Samræmdar eineltisforvarnir hjá skólum og stofnunum bæjarins
  • Öflugt samstarf við þá sem þjónustu njóta

 

Atvinnu- skipulags- og umhverfismál:

Það er hlutverk bæjarstjórnar að skapa það umhverfi sem þarf til að atvinnulíf geti blómstrað í bænum.  Sveigjanleiki í skipulagsmálum þarf að vera til staðar svo Hafnarfjarðarbær geti laðað til sín aukna atvinnustarfsemi og fjárfestingar. Við leggjum áherslu á:

  • Að efla atvinnulífið
  • Að leita leiða til að nýta þær fjárfestingar sem þegar hefur verið stofnað til
  • Að nýta tækifæri í ferðaþjónustu

Framsókn í Hafnarfirði
kosningaskrifstofan er að Norðurbakka 1.

Nýtt fólk - Nýjar hugmyndir
Ný tækifæri - Nýjir kraftar
Ný vinnubrögð - Nýjar lausnir