Kosning utan kjörfundar

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl 2010. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjördag er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar frá og með þeim degi til kjördags.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum um land allt
Hægt verður að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.

Í Reykjavík verður hægt að kjósa á skrifstofu sýslumanns að Skógarhlíð 6 frá kl. 9:00-15:30 virka daga og um helgar frá kl. 12:00-14:00. Frá og með 10. maí fer atkvæðagreiðslan fram í Laugardalhöll og þá verður opið alla daga frá kl. 10:00-22:00. Lokað verður á uppstigningardag og þann 13. maí og hvítusunnudag þann 23. maí.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis
Atkvæðagreiðsla á erlendri grundu hófst á vegum utanríkisráðuneytisins 6. apríl og má nálgast hér upplýsingar um þá staði.

Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði á kjördag þótt hann hafi greitt atkvæði utan kjörfundar og kemur utankjörfundaratkvæðaseðill hans þá ekki til greina við kosninguna.

Utankjörfundarskrifstofa Framsóknarflokksins
Utankjörfundarskrifstofa Framsóknarflokksins er að Hverfisgötu 33 í Reykjavík og er opin frá kl. 9-17 alla virka daga.

Nauðsynlegt er að láta vita um stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag vegna náms, atvinnu, veikinda eða ferðalaga. Jafnframt að láta vita af vinum og ættingjum sem búsettir eru erlendis, s.s. NÁMSMÖNNUM.

Listabókstafur Framsóknarflokksins er B.

Utankjörfundaratkvæði skal vera komið í hendur viðkomandi kjörstjórnar fyrir lok kjörfundar á kjördag. Utankjörfundaratkvæðið er þannig á ábyrgð kjósanda þar til það hefur borist viðkomandi kjörstjórn.

Atkvæði má senda á:
Framsóknarflokkurinn
Bt. Utankjörfundarskrifstofa
Hverfisgötu 33
101 Reykjavík

Einnig má hafa samband við kosningaskrifstofur okkar víðsvegar um landið.

Utankjörfundarskrifstofa Framsóknarflokksins veitir allar nánari upplýsingar og aðstoð við kosningu utan kjörfundar í síma 540-4300 eða á netfangið einar@framsokn.is

Afganistan  Albanía  Austurríki  Ástralía  Bahamaeyjar  Bandaríkin  Belgía  Brasilía  Bretland  

Búlgaría  Chile  Danmörk  Dóminíska lýðveldið  Egyptaland  Eistland  Filippseyjar  Finnland

Frakkland  Færeyjar  Gíbraltar  Grikkland  Grænland  Gvatemala  Holland  Hvíta Rússland  

Indland  Indónesía  Íran  Írland  Ísrael  Ítalía  Jamaíka  Japan  Jemen  Jórdanía  Kanada  

Kína  Kostaríka  Kórea  Kýpur  Lettland  Litháen  Líbanon  Líbería Lúxemborg  Malaví  

Maldíveyjar  Malta  Marokkó  Mexíkó  Mongólía  Mósambík  Namibía  Nepal  Nígería  

Noregur  Nýja Sjáland  Pakistan  Panama  Perú  Portúgal  Pólland  Rúmenía  Rússland  

Serbía  Slóvakía  Spánn  Sri Lanka  Suður Afríka  Sviss  Svíþjóð  Sýrland  Taíland  Tékkland  

Túnis  Tyrkland  Ungverjaland  Úganda  Úkraína  Úrúgvæ  Venesúela  Víetnam  Þýskaland