Mosfellsbær
Marteinn og Bryndís leiða lista framsóknarmanna í Mosfellsbæ

Á fjölmennum félagsfundi Framsóknarfélaganna í Mosfellsbæ miðvikudaginn 31. mars s.l. var nýr framboðslisti fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 29. maí n.k. samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

Efstu sex sætin eru samkvæmt bindandi niðurstöðu fyrsta prófkjörs framsóknarmann í Mosfellsbæ. Næstu sæti eru samkvæmt niðurstöðu uppstillingarnefndar félagsins.  Mikil endurnýjun er á listanum eða níu af fjórtán. Inn kemur nýtt og kraftmikið fólk með víðtæka reynslu. Mikil ánægja og einhugur var meðal fundarmanna með framboðslistann.

Þröstur Karlsson atvinnurekandi og f.v. bæjarfulltrúi skipar heiðursæti listans. Alþingismennirnir Siv Friðleifsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson voru sérstakir gestir félagsfundarins.

Framsókn í Mosfellsbæ á Facebook

Heimasíða Framsóknar í Mosfellsbæ

Listinn er eftirfarandi:

1. Marteinn Magnússon
2. Bryndís Bjarnarson
3. Snorri Hreggviðsson
4. Björg Reehaug Jensdóttir
5. Linda Björk Stefánsdóttir
6. Sveinbjörn Ottesen
7. Ásta Björk Benediktsdóttir
8. Óli Kárason Tran
9. Guðni Þorbjörnsson
10. Vigdís Beck
11. Eggert Sólberg Jónsson
12. Kristbjörg Þórisdóttir
13. Níels U. Hauksson
14. Þröstur Karlsson