Stjórnsýsla / íbúalýðræði Skilvirk og réttlát stjórnsýsla
B-listinn vill að Mosfellsbær sé þekktur fyrir persónulega þjónustu, bær fyrir alla án þröskulda þar sem jafnréttis er gætt og tækifæri eru fyrir alla.
B-listinn leggur mikla áherslu á að stjórnsýslan sé gagnsæ, fagleg, skilvirk og að stjórnkerfi bæjarins verði endurskoðað með það að markmiði að auka sjálfstæði stofnana hans. Valddreifing og aukin rekstrarábyrgð forstöðumanna er eitt af lykilatriðum til að ná hámarksárangri í rekstri.
B-listinn mun taka stjórnkerfið til endurskoðunar með hliðsjón af yfirfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga s.s. málefnum fatlaðra og aldraðra.
Kjörnir fulltrúar vinna í þjónustu bæjarbúa.
Mikilvægt er að Mosfellsbær móti skýra starfsmannastefnu þar sem jafnrétti og endurmenntun verði höfð að leiðarljósi. Ábyrgð og skyldur hvers starfsmanns séu skýrar. Lögð verður sérstök áhersla á að embættismenn starfi í anda stjórnsýslulaga.
Upplýsingamiðlun til bæjarbúa um þá þjónustu sem þeim stendur til boða verður aukin komist B-listinn til áhrifa. Það verður gert með eflingu hverfasamtaka, öflugum íbúaþingum og aðgengilegri heimasíðu / íbúagáttar.
B-listinn vill auka íbúalýðræði. Óski 25% kosningabærra íbúa eftir kosningum eiga íbúar að fá að kjósa um þau mál sem brenna á þeim hverju sinni. Mikilvægt er að bæjarstjórn virki íbúagátt bæjarins þannig að íbúar geti haft áhrif á ýmis mál sem koma þeim við. Ef íbúar hafa ekki möguleika á að nýta sér íbúagáttina fái þeir aðstoð í þjónustuveri bæjarins. Kosningar um íbúagátt væru leiðbeinandi fyrir bæjarstjórn.
Íbúaþing verði haldið í upphafi hvers kjörtímabils og svo annað hvert ár. Niðurstöður þess verði leiðbeinandi fyrir mótun stefnu bæjarins. Hverfasamtök verði endurvakin og stutt verði við bakið á þeim.
Mikilvægt er að Mosfellsbær geti státað að góðri og jafnri þjónustu fyrir alla bæjarbúa svo lífsgæði íbúanna verði sem mest á hverjum tíma.
Fjármál
B-listinn mun tryggja fjölskylduvæna fjármálastefnu þar sem álögum og gjaldtöku er stillt í hóf og manngildi verði ofar auðgildi. Byrðunum verður jafnað út með almennum álögum frekar en með sértækum gjaldskrárhækkunum á einstaka hópa.
B-listinn mun koma á aðhaldi, hagkvæmni og góðu skipulagi í rekstri bæjarins, þar sem eiginhagsmunapot verður ekki liðið. Af gefnu tilefni mun B-listinn gæta hagsmuna Mosfellsbæjar í hvívetna.
Mikilvægt er að endurskoða rekstur bæjarins til að ná fram meira hagræði svo að skatttekjur bæjarins nýtist íbúum sem best. Nauðsynlegt er að forgangsraða verkefnum þannig að grunnþjónusta njóti forgangs.
B-listinn telur afar mikilvægt að farið verði með aukinni varfærni í einkaframkvæmdarsamninga um almannaþjónustu og þeir aðeins gerðir séu kostir þeirra ótvíræðir fyrir bæjarfélagið. Félagsmál
B-listinn vill að Mosfellsbær sé samfélag án þröskulda. Mosfellsbæ viljum við sjá sem fjölskylduvænan bæ þar sem þjónustan tekur mið af þörfum einstaklinganna hverju sinni.
B-listinn vill að mótuð verði heildstæð fjölskyldustefna þar sem málefni fjölskyldunnar í sinni víðustu mynd njóta forgangs. Mikilvægt er að Mosfellsbær komi til móts við börn, unglinga og fjölskyldur þeirra með félagsleg vandamál og útvegi þeim úrræði og ráðgjöf við hæfi.
B-listinn er framsækinn í málefnum fatlaðs fólks. Breyttar samfélagsaðstæður kalla á breytta þjónustu. Mikilvægt er að Mosfellsbær sýni metnað í yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Með yfirfærslunni skapast tækifæri til bættrar þjónustu og aukinna lífsgæða fatlaðra og fjölskyldna þeirra.
Mikilvægt er að allir bæjarbúar fái jafnan aðgang að allri félagsþjónustu. Skoða skal hvort bæjarfélagið geti stutt unga einstaklinga til framhaldsskólanáms.
B-listinn vill stuðla að stofnun byggingarsamvinnufélags ungs fólks.
Eldri borgarar
Mikilvægt er að hlúa vel að eldri borgurum. B-listinn hefur fullan hug á að auka framboð búsetuúrræða fyrir aldraða og kynna nýjar leiðir í þessum málum. Góð heimaþjónusta er mikilvæg þannig að þeir bæjarbúar sem það kjósa geti búið sem lengst á eigin heimili. Samþætta þarf heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu enn meir.
B-listinn mun byggja upp hjúkrunarheimili og tómstundaaðstöðu að Hlaðhömrum í samstarfi við Eir ásamt aðstöðu fyrir félagsstarf aldraðra.
B-listinn vill samstarf við félag aldraða í Mosfellsbæ um að efla tómstundastarfið og sníða það að þörfum karla jafnt sem kvenna.
Á kjörtímabilinu vill B-listinn að viðmið vegna lækkunar fasteignaskatts verði endurskoðuð til hagsbóta fyrir tekjulægri öryrkja og eldri borgara.
Mikilvægt er að Mosfellsbær sýni metnað í yfirfærslu málefna aldraðra frá ríki til sveitarfélaga.
Jafnréttismál
B-listinn vill stuðla að því að íbúum verði ekki mismunað eftir kyni, stöðu, fötlun, litarhætti eða trúarbrögðum...
B-listinn vill auka vægi jafnréttismála að nýju innan bæjarfélagsins. Að jafnréttissjónarmið verði í heiðri höfð og unnið verði eftir jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar. Launamisrétti verður ekki liðið meðal starfsmanna bæjarins.
Jafnréttisviðurkenningar verði veittar til þeirra fyrirtækja og stofnana sem hafa staðið fyrir auknu jafnrétti.
Við setjum manngildi ofar auðgildi og viljum að hver og einn hafi sama rétt til menntunar, þroska og grundvallarlífskjara óháð uppruna, kyni, heilsu og efnahag.
Forvarnir/ löggæsla
B-listinn gerir kröfu um aukna löggæslu í Mosfellsbæ og að lögregla sé við störf í bæjarfélaginu allan sólarhringinn, allt árið um kring, án undantekninga. Einnig er mikilvægt að lögreglan sé sýnileg og að auðvelt aðgengi sé að lögreglustöð á miðbæjarsvæðinu.
B-listinn vill efla vægi forvarna í Mosfellsbæ. Lögregla og forvarnarfulltrúar vinni með bæjarbúum og þá sérstaklega skólum og tómstundafélögum bæjarins.
Fræðslumál Mennt er máttur
B-listinn vill að Mosfellsbær verði í fararbroddi í fræðslustarfi á öllum skólastigum.
Skólastefnu Mosfellsbæjar ber að endurskoða í samráði við starfsmenn og foreldra með hliðsjón af ört stækkandi bæjarfélagi og breyttum áherslum í þjóðfélaginu.
Húsnæði og leiksvæði skóla bæjarins þarf að bæta og vill B-listinn sjá til að svo verði gert á komandi kjörtímabili. Mikilvægt er viðhalda og endurnýja húsnæði og leiksvæði skóla bæjarins betur en gert hefur verið.
Mikilvægt að aðhald og eftirfylgni sé með skólamáltíðum, framboði, innihaldi og verðlagningu þeirra
Listaskóla Mosfellsbæjar ber að styðja áfram þannig að kostnaði bæjarbúa er sækja nám í skólanum verði ávallt haldið í lágmarki.
Aðbúnaður kennara, starfsfólks og nemenda á alltaf að vera til fyrirmyndar og skólar Mosfellsbæjar eiga að vera eftirsóknarverðir vinnustaðir bæði fyrir börn og starfsmenn. Kennarar og annað starfsfólk skólanna verði haft með í ráðum í auknum mæli þegar breytingar eru gerðar t.d vegna rekstrar skólanna.
Lausum kennslustofum verði markvisst fækkað með uppbyggingu skólahúsnæðis. Leikskólar
Daggæsla barna skal vera tryggð frá lokum fæðingarorlofs.
Stefnt verði að því að veita öllum foreldrum barna, er þess óska, möguleika á daggæslu frá því að fæðingarorlofi lýkur. Foreldrar skulu hafa val um leikskóla með hliðsjón af áherslum hvers skóla.
Í kjölfar byggingar nýrra hverfa er nauðsynlegt að huga að byggingu leikskóla með framtíðarsýn skipulags að leiðarljósi.
Grunnskólar
Mikilvægt er við ákvarðanatöku um byggingu grunnskóla að horft sé til framtíðar og þarfir barna hafðar að leiðarljósi.
B-listinn vill tryggja að grunnskólar bæjarins geti unnið sjálfstætt og metnaðarfullt starf. Mikilvægt er að grunnskólum bæjarins verði búnar aðstæður til þess að þeir geti sem best komið til móts við þær þarfir og kröfur sem gerðar eru til skólastarfs í dag. Framhaldsskóli
Mikilvægt er að styrkja nýjan framhaldskóla Mosfellsbæjar og hefja sem allra fyrst byggingu hans svo ungmenni bæjarins sjái sér hag í að sækja skóla innanbæjar. Menningarmál Menning auðgar
Mikilvægt er að Mosfellsbær sameini alla menningarstarfsemi undir sama málaflokk en þar telst menning m.a. vera tómstundir, íþróttir, félagsstörf, listir og menningartengd ferðaþjónusta. Saga hitaveitunnar verði gerð sýnilegri í bæjarfélaginu.
Samstarf bæjarfélagsins við ríkið um rekstur Laxnessseturs þarf að efla og skoða ber möguleika á að stofna til söguminja- og byggðasafns í Mosfellsbæ. Stefnt skal að því að Brúarland verði skólaminjasafn. Listir
Mosfellsbær státar af ríkri menningar- og listasögu sem nauðsynlegt er að varðveita og efla. Samstarf listamanna og skóla bæjarins má efla enn frekar svo fjölbreytt flóra menningar og lista í grunnskólum og stofnunum bæjarins fái notið sín.
B-listinn vill að Mosfellsbær stuðli að hvatningarverðlaunum til handa ungum listamönnum í grunnskólum bæjarins.
Íþrótta- og tómstundastarf Holl hreyfing ,útivist og náttúra
Gildi íþrótta- og tómstundastarfs sem forvörn er ómetanlegt og því er mikilvægt að allir bæjarbúar hafi sömu möguleika á að stunda og taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi.
Mikilvægt er að frístundagreiðslur vegna íþrótta-og tómstundastarfs verði í boði fyrir öll börn á aldrinum 4-18 ára. Efla þarf samráð við íþrótta- og tómstundafélög innan bæjarins um forgangsröðun verkefna.
Uppbyggingu þarf að ljúka við íþróttamiðstöðina að Varmá svo sem anddyri og félagsaðstöðu eins fljótt og auðið er.
Hafravatnssvæðið sér B-listinn sem tilvalið svæði fyrir útivistarparadís.
Átak verði gert í lagningu hjólreiða-, göngu- og reiðstíga, áningarstöðum fjölgað og lýsing bætt. Leiðarlýsingar lagfærðar og umferðaröryggi tryggt sem best.
B-listinn telur mikilvægt að í sumarleyfum grunnskólabarna sé boðið upp á fjölbreytt og spennandi leikja- og íþróttanámskeið.
Hlutverk vinnuskóla bæjarins ber að endurskoða og þróa í takt við breyttar áherslur, þarfir og kröfur. Vinnuskólinn á að vera aðlaðandi og þarf að bjóða upp á lærdómsrík verkefni sem unglingar sækjast eftir að leysa.
Skipuleggja þarf svæði fyrir skíðalyftu með sérstakri sleða- og brettabrekku.
Skíðasvæðið í Skálafelli þarf að byggja betur upp og leggja áherslu á að kaupa og reka snjógerðartæki. Stutt skal við byggingu skíðaskála í Skálafelli.
Aðstöðuna á brettasvæðinu við Völuteig þarf að bæta.
Frístundasel
Að skóladegi loknum er mikilvægt að bæjarfélagið komi til móts við þarfir foreldra með því að bjóða góða þjónustu við börnin. Góður aðbúnaður og fjölbreytilegt starf skal vera í fyrirrúmi í öllum frístundaselum bæjarins. Atvinnu-, þróunar- og ferðamál Vinna - vöxtur - velferð
Efla verður atvinnulíf í Mosfellsbæ þar sem framtak einstaklinga og fyrirtækja fær að njóta sín. Þróunar- og ferðamálanefndina verður að virkja og efla aftur til muna þannig að nefndin verði undirstaða eflingar og nýsköpunar í atvinnu- og ferðamálum. Umfjöllun um atvinnumál verði færð frá bæjarráði til nefndarinnar.
Nauðsynlegt er að kynnast starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í samstarfi við Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar og efla það t.d. með beinum fjárframlögum og sérfræðiráðgjöf.
B-listinn vill laða atvinnustarfsemi til bæjarins með góðri aðstöðu og þjónustu en jafnframt styðja við þau fyrirtæki sem til staðar eru og efla samstarf og samvinnu við þau og þeirra í milli.
Aðstöðu fyrir ferðamenn og þjónustu þeim til handa verður að efla til muna. Nauðsynlegt er að bærinn komi upp vel skipulögðu tjaldstæði með góðri og fjölskylduvænni aðstöðu fyrir ferðamenn.
Ráðinn verði atvinnumálafulltrúi í Mosfellsbæ til að styðja við og hrinda atvinnumálaaðgerðum hratt og vel í framkvæmd. Haldið verði íbúaþing um atvinnuuppbyggingu strax að loknum kosningum. B-listinn vill tryggja aðgengi fyrir alla að ferðamannastöðum, náttúruperlum og fornminjum í Mosfellsbæ. Einnig að stutt verði við fornleifarannsóknir og heilsutengd ferðaþjónusta í bæjarfélaginu efld.
Skipulagsmál Umhverfisvænt skipulag og framkvæmdir
B-listinn vill lýðræðisleg vinnubrögð í skipulagsmálum í sátt við umhverfið og í samvinnu við íbúana og við teljum nauðsynlegt að íbúar fái að kjósa um stórar ákvarðanir.
Skipulag Mosfellsbæjar ber að sjá sem eina heild og byggðina vel skipulagða í kringum sterkan miðbæ. Skipulagsmál þurfa að vera sífellt í mótun í stækkandi bæjarfélagi, taka þarf sérstakt tillit til umhverfismála og taka mið af Staðardagskrá 21. Við viljum leggja áherslu á fallegt og öruggt umhverfi íbúum til handa. Tryggja þarf aðgang að opinni ósnortinni náttúru við gerð skipulagsáætlana.
Stuðla þarf að uppbyggingu sterks miðbæjar í Mosfellsbæ þar sem aðgengi fyrir alla er tryggt og aðstaða er til menningarviðburða.
B-listinn í Mosfellsbæ vill að í skipulagsmálum bæjarins verði horft betur til framtíðar. Aðgengi að stofnunum bæjarins verður að vera gott fyrir alla bæjarbúa. Vinna þarf að uppbyggingu ævintýragarðs. Umhverfismál Virk umhverfisstefna
Virk umhverfisstefna verði ávallt höfð að leiðarljósi í Mosfellsbæ.
Við viljum leggja mikla áherslu á virka umhverfisstefnu og að unnið sé eftir markmiðum Staðardagskrár 21. Á öllum skólastigum ber að tryggja virka umhverfisfræðslu og hvetja bæjarbúa til þátttöku í umhverfisvænum lífsháttum. Stuðla þarf að bráðabirgðafrágangi opinna byggingasvæða, tryggja frágang grunna og ófrágenginna bygginga svo ekki stafi hætta af. Stefnt skuli að flokkun alls heimilissorps í Mosfellsbæ.
Almenningssamgöngur verði bættar frá því sem nú er og gerðar að raunhæfum samgöngukosti.
Umhverfi og ásýnd bæjarins þarf að bæta á markvissan hátt og er æskilegt að stofnanir bæjarfélagsins sýni þar fordæmi með góðri umgengni.
Átak þarf í fegrun og hreinsun Leirvogs og strandlengjunnar og uppgræðslu á námusvæðum innan bæjarmarkanna ásamt almennri uppgræðslu.
Álafosskvos þarfnast fegrunar, endurbóta og umhverfi hennar ber að gera að aðlaðandi útivistarsvæði fyrir alla bæjarbúa.
Göngustígar verði merktir, hreinsaðir og lýsing bætt, bekkjum og ruslafötum fjölgað.
Mosfellsbær fái úttekt á mengun frá Álfsnesi og geri ráðstafanir varðandi þær.
Snyrtimennska og virðing við umhverfið verði höfð að leiðarljósi í Mosfellsbæ.