Rangárþing eystra
Ísólfur Gylfi mun leiða í Rangárþingi eystra

Uppstillinganefnd hefur skilað tillögu að lista framsóknarmanna og annarra framfarasinna í Rangárþingi eystra fyrir sveitarstjórnarkosningar 29. maí n.k.

Hér má nálgast Framsókn í Rangárþingi eystra á Facebook

Samkvæmt tillögunni munu eftirtaldir aðilar skipa listann:


1. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri
2. Guðlaug Ósk Svansdóttir, ferðamálafræðingur
3. Lilja Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
4. Haukur Guðni Kristjánsson, rekstrastjóri
5. Ásta Brynjólfsdóttir, þroskaþjálfi
6. Oddný Steina Valsdóttir, bóndi
7. Bergur Pálsson, sölumaður
8. Gunnhildur Jónsdóttir, listamaður og nemi
9. Helga Guðrún Lárusdóttir, háskólanemi
10. Lárus Viðar Stefánsson, íþróttakennari
11. Sigurður Bjarni Sveinsson, nemi
12. Ásta Halla Ólafsdóttir, garðyrkjufræðingur
13. Ingibjörg Marmundsdóttir, félagsliði
14. Sigrún Þórarinsdóttir, bóndi

Tillaga uppstillingarnefndar verður borin upp á íbúaþingi sem efnt verður til á sumardaginn fyrsta þann 22. apríl n.k. kl. 10.30 í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.