B-listi framsóknarmanna og óháðra í Sandgerði samþykktur
Á mjög fjölmennum fundi Framsóknarfélags Sandgerðis í gær, 29. mars, var lögð fram tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara hinn 29. maí n.k. Tillaga kjörnefndar var samþykkt samhljóða með lófaklappi.
Að fundi loknum var boðið upp á veitingar, teknar ljósmyndir af framboðslistanum, spjallað og var mikil ánægja með kvöldið. Það er hugur í FRAMSÓKNARMÖNNUM!!