B-listi Framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks á Seyðisfirði
Á almennum félagsfundi í Framsóknarfélagi Seyðisfjarðar, í gær, sunnudag, var lögð fram tillaga uppstillingarnefndar að lista sem boðin yrði fram við bæjarstjórnarkosningarnar sem fram fara 29. maí næstkomandi. Mikil jákvæðni var meðal þeirra sem sátu fundinn og var listinn samþykktur af öllum sem þar voru.
B-listi Framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks við bæjarstjórnarkosningarnar í Seyðisfjarðarkaupstað 29. maí 2010 skipa eftirtaldir:
1. Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi 2. Eydís Bára Jóhannsdóttir, kennari 3. Hjalti Þór Bergsson, bifreiðastjóri 4. Unnar B. Sveinlaugsson, viðgerðamaður 5. Óla B. Magnúsdóttir; skrifstofumaður 6. Sigríður Berglind Sigurðardóttir, félagsliði 7. Guðjón Sigurðsson, sjúkraflutningamaður 8. Sigríður Stefánsdóttir, loftskeytamaður 9. Örvar Jóhannsson, rafvirkjanemi 10. Sigurður Ormar Sigurðsson, bæjarstarfsmaður 11. Bjarney Emilsdóttir, húsmóðir 12. Snorri Jónsson, plötu- og ketilsmiður 13. Friðrik H. Aðalbergsson, eldri borgari 14. Þórdís Bergsdóttir, framkvæmdastjóri