1. gr. Sambandið heitir Landssamband framsóknarkvenna., skammstafað LFK. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Hlutverk sambandsins er að vinna að: a) kynningu á stefnumálum Framsóknarflokksins og auknu fylgi við þau. b) auknu samstarfi meðal framsóknarkvenna. c) aukinni þjálfun framsóknarkvenna í félagsstörfum og stóraukinni þátttöku þeirra í stjórnmálum.
3. gr. Aðilar að LFK geta orðið: a) Flokksbundnir framsóknarmenn. b) aðrir sem óska aðildar enda séu þeir ekki félagar í öðrum stjórnmálasamtökum.
4. gr. Landsþing skal halda annað hvert ár og skal það boðað með dagskrá með minnst mánaðar fyrirvara. Það fer með æðsta vald í málefnum sambandsins. Rétt til að sitja landsþingið hafa aðilar samkvæmt 3. grein með málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétt. Á landsþinginu skal fjalla um: a) stjórnmálaástandið, störf og stöðu Framsóknarflokksins. b) aðstöðu framsóknarkvenna til aukinnar stjórnmálaþátttöku. c) störf sambandsins og hvernig megi efla þau. d) önnur mál sem stjórnin telur ástæðu til að fjalla um á þinginu. Óski félagskonur að sérstök mál fái umfjöllun á þinginu skulu þau hafa borist framkvæmdastjórn tveimur mánuðum fyrir landsþing.
5. gr. Kjör í framkvæmdastjórn fer fram á landsþingi. Kjósa skal formann beinni kosningu og síðan fjórar stjórnarkonur sem skipta með sér verkum. Kjósa skal tvær konur til vara í framkvæmdastjórn. Einnig skal kjósa á landsþingi sex konur, eina úr hverju kjördæmi og sex konur til vara með sama hætti og mynda þær ásamt framkvæmdastjórn "landsstjórn" sem kemur saman eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Landsstjórnarfulltrúar skulu vera tengiliðir framkvæmdastjórnar við kjördæmin. Engin getur setið lengur en 8 ár í framkvæmdastjórn eða landsstjórn í senn. Þó má kjósa formann framkvæmstjórnar óháð fyrri stjórnarsetu en enginn getur þó verið lengur formaður en í 8 ár í senn. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga.
6. gr. Framkvæmdastjórn komi saman eftir þörfum. Verksvið framkvæmdastjórnar er: - Að vinna að framkvæmd stefnumála samkvæmt 2 gr. - Að annast daglegan rekstur samtakanna. - Að fylgja eftir samþykktum landsþings. - Að undirbúa landsþing og skipa uppstillingarnefnd.
7. gr. Reikningsárið er almanaksárið. Reikningar Landssambandsins skulu afgreiddir á landsþingi.
8. gr. Lögum þessum má breyta á landsþingi og þarf til þess einfaldan meirihluta þeirra sem á landsþingi sitja. Lagabreytinga skal getið í fundarboði.
9. gr. Ef Landssamband framsóknarkvenna verður lagt niður, renna eigur þess til Framsóknarflokksins.