Ég hef haldið áfram formannsferð minni um landið og
heimsótti ég tvö bæjarfélög nú í vikunni, Hafnarfjörð og Mosfellsbæ. Það
skemmtilegasta sem stjórnmálamaðurinn gerir er að sækja heim fólkið og heyra
hvað brennur á því. Ég ræddi við bæjarstjóra þessara sveitarfélaga og kynnti
mér það sem helst er í gangi hjá þeim og á sveitarstjórnarstiginu. Ég fór í
Flensborgarskólann í Hafnarfirði og talaði við menntaskólafólkið, ég dáist af
því hve unga fólkið er skarpt og beitt í sinni pólitísku hugsun. Við Íslendingar
höfum svo sannarlega byggt upp gott og framsækið þjóðfélag með kraftmikilli
æsku. En að mörgu þarf að hyggja og er það reyndar stöðugt verkefni okkar allra. Í hinni hátæknilegu
Actavis verksmiðju er viðhöfð fagmennska í hvívetna. Einstaklega gaman var svo
að hitta fólkið á Hrafnistu.
í Mosfellsbæ kynnti ég mér starfsemi Reykjalundar og
Dvalarheimilis aldraðra. Ég kom við í Lágafellsskóla þar sem ég hitti kennarana
og grunnskólanemendur. Það var gaman að sjá að búið var að mála heilan vegg í
grænum stöfum sem á stóð „samvera, samkennd og samvinna“. Það er mikilvægt að
unga fólkið geri sér grein fyrir þeim gríðarlega krafti sem felst í þessum
einkunnarorðum okkar framsóknarmanna og ánægjulegt að sjá skólastarfið í svo
miklum blóma hjá krökkunum í Mosfellsbænum.
Haustfundur
Nú um helgina verður haldinn haustfundur þingflokksins og
landsstjórnarinnar á Húsavík þar sem við þingmenn flokksins komum saman ásamt
trúnaðarmönnum og ræðum komandi þing og þau mál sem fyrir liggja. Framsóknarflokkurinn
hefur mörg mikilvæg mál fram aða færa fyrir íslenska þjóð og samfélag og munum
við leggja okkar á vogarskálar til að vernda kaupmátt , atvinnu, húsnæði og
hagsmuni fólks og fyrirtækja á þessum erfiðu tímum í efnahagslífinu. Því miður
situr daufgerð stjórn athafnaleysis í stjórnarráðinu og hefur siglt með okkur
inn á hættuleg mið. Við framsóknarmenn höfum lagt fram efnahagstillögur frá því
í fyrra sem hefðu tryggt hér mýkri lendingu ef eftir þeim hefði verið farið,
það sýna staðreyndir. Verðbólgan var hér á niðurleið þegar við fórum úr
ríkisstjórn, við vorum að ná tökum á henni, rétt eins og 1999 og 2003. Það bar
að stíga á bremsurnar hér eftir kosningarnar 2007. Ríkisstjórnin fór sínu fram
og lagðist ekki í þann undirbúning að íslenskt efnahagslíf væri búið undir
væringar á alþjóðamörkuðunum. Þvílík ríkisstjórn!
Þingályktun um Efnahagsráð Íslands
Ríkisstjórnin verður að vakna! Afar brýnt er að tekið verði
á þessum efnahagsvanda af festu og ákveðni. Þau eru svo djúptæk og víðfeðm að á þeim
verður ekki fundin viðunandi lausn nema þjóðin í heild taki höndum saman.
Takist það ekki munu afleiðingarnar blasa við innan tíðar í dýpri
efnahagskreppa, meiri kjaraskerðingu og stærri áföllum heimila og atvinnulífs
en ásættanlegt er.
Ég mun á nýju þingi beita mér fyrir þingsályktun um að þegar
í stað verði myndaður samráðsvettvangur helstu aðila samfélagsins sem hafi það
að verkefni að leita hagfelldustu leiða út úr þeim efnahagskröggum sem þjóðinni
hefur verið stýrt inn í. Í þessum hópi verða forystumenn stjórnmálaflokkanna, fulltrúar
atvinnulífsins, launþega, sveitarfélaga, fjármálafyrirtækja og Bændasamtaka
Íslands. Þessum hópi til fulltingis verður úrval sérfræðinga á sviði
efnahagsmála frá Seðlabankanum, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, erlendum
sérfræðistofnunum og háskólum.
Ég legg til að þessum hópi verði falið að samræma leiðir út
úr efnahagsvandanum og leggja grunn að styrku íslensku efnahagslífi til
frambúðar sem hefur að leiðarljósi að styrkja útflutning og framleiðslu
atvinnulífsins og þjóðarsparnað. Hlutverk hópsins á ekki að vera pólitísk
togstreita. Verkefnið er fyrst og fremst tæknilegs eðlis og hefur það markmið
að koma á jafnvægi á þjóðarbúskap Íslendinga, bæði til skamms og langs tíma.
Það er mjög mikilvægt að nú verði tekið á málunum og aðgerðaleysisstefnan lögð
til hliðar. Annað er hreinlega ekki hægt.