Á skrifstofu Framsóknarflokksins liggur frammi minningarbók þar sem þeir sem vilja heiðra minningu Steingríms Hermannssonar geta ritað nafn sitt í.
Steingrímur var einn af ástsælustu stjórnmálamönnum þjóðarinnar um langt skeið. Hann sat á þingi á árunum 1971-1994 og átti sæti í ríkisstjórn frá 1978-1991, þar af sem forsætisráðherra 1983-1987 og 1988-1991. Steingrímur var formaður Framsóknarflokksins á árunum 1979-1994.
Hægt verður að koma við á skrifstofu Framsóknarflokksins, í dag, fimmtudag, frá kl. 13:00-17:00, á morgun föstudag og á mánudaginn á sama tíma.
Laugardaginn 30. janúar n.k. verður kaffispjall á Hverfisgötu 33, kl. 10:00-12:00. Sérstakur gestur að þessu sinni er Dipl.ing. Ágúst Karlsson. Flytur hann erindi sem nefnist:
ORKAN OG UMHVERFIÐ II
Hefðbundnir og nýir orkugjafar / umferðarskipulag.
Gestgjafi og fundarstjóri verður Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður og fulltrúi Framsóknarflokksins í umhverfisnefnd.
Nú eru sveitarstjórnarkosningar í farvatninu og er þetta erindi hugsað sem góð hvatning til stuðnings okkar pólitíska málstað. Margt bitastætt í þeim efnum er að finna í þessum fyrirlestri og fléttað verður inn í hann málefni sem eru ofarlega á baugi nú og í náinni framtíð.
Við hvetjum ykkur til að mæta á áhugaverðan fyrirlestur og eiga stund með góðu fólki í upphafi helgarinnar. Sérstaklega hvetjum við áhugamenn um samgöngur á Stór-Reykjavíkursvæðinu að koma og kynna sér málin því kynnt verður framtíðarsýn til næstu 25-35 ára.