Á fjölmennum aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur voru Sigrún Sturludóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir og Hörður Gunnarsson gerð að heiðursfélögum félagsins.
Í máli Sigrúnar Magnúsdóttur kom fram að Sigrún Sturludóttir væri fágætt eintak af félagsmálakonu frá unga aldri. Hún er kletturinn í hafinu hjá Framsókn, gengt ótal trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, innan hans og utan. Flokksþingið 2005 veitti henni jafnréttisverðlaun Framsóknar, enda hafði hún gert kraftaverk í stjórnartíð sinni hjá Landssambandi Framsóknarkvenna.
Áslaug Brynjólfsdóttir er eldheit félags- og framsóknarkona, verðug fyrirmynd kvenna, sístarfandi og hugsandi um hag Framsóknar. Áslaug hlaut einnig jafnréttisverðlaun Framsóknar 2005.
Hörður Gunnarsson er traustur Framsóknarmaður, sem heldur flokknum gangandi. Þegar hugsjónin er leiftrandi skýr er auðvelt að koma henni til skila og hafa hana að vopni í viðureignum við pólitíska andstæðinga.
Fundarmenn risu úr sætum og hylltu þessa nýu heiðursfélaga félagsins.
Nýr formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur – Jón Ingi Gíslason
Á fjölmennum aðalfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur þann 7. maí s.l. var kjörinn nýr formaður félagsins, Jón Ingi Gíslason. Hann á ættir að rekja í Biskupstungur og verið dyggur liðsmaður flokksins um árabil. Á fundinum var Sigrúnu Magnúsdóttur, fráfarandi formanni, þökkuð góð og mikil vinna fyrir félagið, enda starfsemin verið mikil og fjölbreytt á liðnum misserum.
Í stjórn með Jóni Inga voru kjörin: Þuríður Bernódusdóttir (varaformaður), Kristján Hall, Ólafur Hjálmarsson (gjaldkeri), Bryndís Guðmundsdóttir (ritari), Magnús H. Gíslason og Nanna Gunnlaugsdóttir. Varamenn eru: Jónína Benediktsdóttir og Hafsteinn Ágústsson.
Í máli nýkjörins formanns var bent á mikilvægi þess að Framsóknarmenn verði viðbúnir því að það verði lítið sumarfrí enda kosningavetur framundan. Verkefnin eru ærin og mikilvægt að ná að virkja sem flesta í starfinu framundan. Þakkaði hann þingmönnum flokksins og formanni fyrir dugnað og ósérhlífni. Þau hafa verið dugleg að taka þátt í viðburðum Framsóknarfélags Reykjavíkur á liðnu starfsári.
Lykillinn að velgegni Framsóknarflokksins í komandi kosningum er fyrnasterkt starf á Reykjavíkursvæðinu. Ísland þarf stöðugleika Framsóknarstefnunnar á viðsjárverðum tímum pólitískra öfga, stefnu flokks sem gengur óhræddur og staðfastur inn í framtíðina með óbilandi trú á Ísland að leiðarljósi.