Efnahags- og ríkisfjármál

02. mars 2026
02. mars 2026

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um efnahagsmál

PDF

Flokksþingsályktun um efnahagsmál

PDF

Green Fern

Efnahags- og ríkisfjármál

  1. Framsókn leggur áherslu á að ríkissjóður búi yfir nægjanlegum viðnámsþrótti gegn efnahagslegum áföllum. 

  2. Framsókn vill stuðla að fullri atvinnuþátttöku, stöðugu verðlagi og heilbrigðum hagvexti. 

  3. Framsókn telur mikilvægt að vinna að hallalausum ríkisrekstri og jafnvægi í utanríkisviðskiptum. 

  4. Framsókn styður blandað markaðshagkerfi sem byggir á frumkvæði, samvinnu, samfélagslegu réttlæti og gagnsæju regluverki. 

  5. Framsókn leggur áherslu á fyrirsjáanlegt efnahagsumhverfi sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að gera langtímaáætlanir. 

  6. Framsókn leggur þunga áherslu á að auka tekjuöflun ríkisins með auknum vexti og verðmætasköpun fremur en með aukinni skattheimtu á fólk og fyrirtæki. Í því samhengi skiptir meðal annars máli að fyrirsjáanleg, fjármögnuð og skilvirk hvatakerfi til aukinnar verðmætasköpunar verði fest í sessi, má þar nefna endurgreiðslur vegna rannsókna, þróunar og kvikmyndagerðar og fjármunum til markaðssetningar á Íslandi sem áfangastaðar verði tryggðir. 

  7. Framsókn leggur áherslu á að fjölga stoðum hagkerfisins, meðal annars með eflingu skapandi greina og hugvits. Til þess að leggja grunn að nýjum og spennandi atvinnutækifærum. Framsókn telur mikilvægt að styðja áfram vöxt þeirra atvinnugreina sem fyrir eru enda hafa þær lagt grunninn að einum bestu lífskjörum sem fyrirfinnast á byggðu bóli.  

  8. Framsókn vill tryggja samkeppnishæfni atvinnuvega og efla utanríkisviðskipti og alþjóðlegt samstarf. Stærð og gerð hagkerfisins gerir það að verkum að utanríkisviðskipti eru afar mikilvæg. Áhersla skal lögð á virka þátttöku í alþjóðastofnunum og stöðugt verði leitað nýrra markaða ásamt því að rækta sambönd við nágrannalöndin beggja vegna Atlantsála. 

  9. Framsókn styður eflingu stofnanakerfis ríkisins með sameiningum og samrekstri. En horfa skal til byggðasjónarmiða við endurskipurlangningu þeirra. Þá er mikilvægt að halda áfram innleiðingu starfrænna lausna í rekstri hins opinbera. 

Einfalt og réttlátt skattkerfi

  1. Framsókn styður þrepaskipt tekjuskattkerfi einstaklinga til að stuðla að sanngjarnri tekju- og eignaskiptingu. 

  2. Framsókn leggur áherslu á áframhaldandi nýtingu persónuafsláttar til tekjujöfnunar. 

  3. Framsókn vill efla skilvirkt skattaeftirlit.  

  4. Framsókn telur mikilvægt að skattkerfið styðji jákvæða byggðaþróun. 

  5. Framsókn styður við græna skattahvata til að standa  við loftslagsmarkmið Íslands og hvetja til sjálfbærari starfshátta.  

  6. Framsókn leggur áherslu á að skattkerfið hvetji til sjálfbærni og umhverfisvænnar framleiðslu og neyslu.

  7. Framsókn styður endurskoðun tekjustofna og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga með rekstrargrundvöll sveitarfélagana að leiðarljósi.   

  8. Framsókn vill að komið verði á skattaafslætti tengdum fjárfestingu í hlutabréfum sem skráð eru á skipulegan markað.  

  9. Framsókn vill  að nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum verði gert kleift að njóta ávinnings af fjárfestingu í samvinnu við markaðstorg fjármálagerninga. 

  10. Framsókn leggur til niðurfellingu á virðisaukaskatti við uppbyggingu  grunninnviða sveitarfélaga þar með talið veitur, menntastofnanir og íþróttamannvirki.  

Sjálfstæð peningastefna með íslenska krónu

  1. Framsókn leggur áherslu á sjálfstætt ákvörðunarvald Seðlabanka Íslands. 

  2. Framsókn styður öflug þjóðhagsvarúðartæki og sterkan gjaldeyrisvaraforða.

  3. Framsókn telur að íslenska krónan þjóni áfram hagsmunum Íslands best.. 

Lífeyrissjóðakerfið 

  1. Framsókn vill kanna sérstaklega hvernig lífeyrissjóðirnir geti tekið þátt í að flýta arðbærum innviðaframkvæmdum, til dæmis í samvinnu við hið opinbera eftir því sem við á.  

  2. Framsókn telur að fækka þurfi lífeyrissjóðum með það að markmiði að draga úr kostnaði og styrkja réttindi sjóðsfélaga.  

Viðskipti, samkeppni og neytendur 

  1. Framsókn vill skilvirka umgjörð viðskiptalífs, styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.  

Lægri verðbólga 

  1. Framsókn leggur áherslu á að aðgerðir hins opinbera miði að því að slá á verðbólgu og verðbólguvæntingar. 

  2. Framsókn telur nauðsynlegt að beita tímabundnum aðgerðum til að draga úr eftirspurnarþrýstingi í hagkerfinu þegar það á við. 

  3. Framsókn leggur áherslu á bæði gengisstöðugleika og að draga úr innfluttri verðbólgu. 

  4. Framsókn vill tryggja að gjaldtaka hins opinbera sé ávallt hófleg til að draga úr neikvæðum áhrifum þess á hagkerfið og kaupmátt heimila. 

  5. Framsókn telur mikilvægt að samningar á opinbera vinnumarkaðnum stuðli ekki að launaskriði á almennum vinnumarkaði. 

  6. Framsókn vill koma í veg fyrir að kostnaðarverðbólga festi sig í sessi. 

  7. Framsókn vill festa varanlega í sessi heimild til að nýta viðbótarlífeyrissparnað inn á fasteignalán. 

Skilvirk umgjörð viðskiptalífs og virkt samkeppniseftirlit 

  1. Framsókn vill stuðla að aukinni samkeppnishæfni og sveigjanleika íslensks atvinnulífs með því að draga úr hindrunum í gildandi regluverki og tryggja að ný löggjöf sé skýr og skilvirk. Umgjörð og leikreglur viðskiptalífsins eiga að vera einfaldar og skýrar og til þess fallnar að stuðla að góðum viðskiptaháttum í þágu samfélagsins alls. Sérstaklega sé horft til þess að regluverk lítilla og meðalstórra fyrirtækja sé ekki of íþyngjandi.  

  2. Framsókn telur brýnt að ábati samkeppninnar skili sér til neytenda. Skilvirkt og öflugt eftirlit með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja er mikilvægur þáttur í því. Efla þarf Samkeppniseftirlitið til að það geti uppfyllt og framkvæmt lögbundin verkefni sín. Æskilegt er að umgjörð samkeppnislöggjafar hér standist samanburð við önnur lönd er varðar sjálfstæði eftirlits, eftirlitsheimildir og rétt málsaðila í samkeppnismálum.  

  3. Framsókn vill treysta grundvöll samvinnufélaga,einfalda stofnun þeirra og hvetja til þess að horft sé til þeirra sem rekstarforma sem geta nýst til eflingar samfélaga um land allt. 

Fjármálakerfið

  1. Framsókn leggur áherslu á hagsmuni heimila og fyrirtækja við skipulagningu fjármálakerfisins og mikilvægt er að í því efni veiti stjórnvöld fjármálakerfinu áfram aðhald og eftirlit.  

  2. Framsókn telur ekki tímabært að huga að sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum og að til lengri tíma haldi ríkið á verulegum hlut í bankanum., Þetta er mikilvægt vegna þjóðaröryggis og til að tryggja stöðugar lánveitingar m.a. til landsbyggðarinnar og þeirra atvinnugreina sem þar eru starfræktar. 

  3. Framsókn vill skýra eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum með það að markmiði að þau stígi ekki frekari skref í fjárfestingum í mikilvægum fyrirtækjum á fjármálamarkaði. 

Aðrar eignir og félög í eigu ríkisins 

  1. Framsókn vill skoða með skipulögðum hætti hvernig ýmsar fasteignir og lóðir í eigu ríkisins geti stutt við markmið um aukna uppbyggingu á húsnæðismarkaði eða styrkingu á fjárhag ríkissjóðs.  

Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.