Umhverfismál

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um umhverfismál

PDF

Flokksþingsályktun um umhverfismál

PDF

Green Fern

Náttúruauðlindir og auðlindanotkun

  1. Framsókn leggur áherslu á sanngjarna skiptingu arðs og vernd þolmarka náttúrunnar. 


  2. Framsókn hefur löngum ítrekað mikilvægi þess að tryggja landsmönnum sanngjarnan arð vegna nýtingar náttúruauðlinda landsins. Þá er mikilvægt að náttúruauðlindir landsins séu skilgreindar og að haldið sé náttúruauðlindabókhald til að halda utan um auðlindir landsins og tryggja að ekki sé gengið á þolmörk þeirra. 


  3. Framsókn vill auðlindaákvæði í stjórnarskrá lýðveldis Íslands. Slíkt auðlindaákvæði þarf að tryggja sveitarfélögum og landsmönnum sanngjarnar tekjur og arð af sameiginlegum auðlindum. Lögfesta þarf það sem flokkast til auðlinda hér á landi eins og kostur er og hvaða auðlindir Íslands skulu vera í þjóðareign. 

Lífríki lands og sjávar 

  1. Hreinleiki hafs er verðmæti sem mikilvægt er að virða og vernda um ókomna tíð. 


  2. Framsókn leggur áherslu á vernd jarðvegs sem auðlindar. Jarðvegurinn sjálfur er einnig verðmæt auðlind til fæðuframleiðslu og kolefnisbindingar.  


  3. Framsókn vill leggja áherslu á verndun landslagsheilda, vist- og landgerða sem og líffræðilegs fjölbreytileika.  


  4. Framsókn vill að unnar verði skipulagsáætlanir fyrir allt land í almannaeigu, þar með talið hálendið og þjóðlendur og flokkun lands vera skilgreind í landskipulagsstefnu. 


  5. Framsókn telur að vinna eigi landnýtingarstefnu fyrir allt landið og strandsvæði sem taki mið af þolmörkum. Landnýtingaráætlun gæti stutt við skipulag sveitarfélaga svo dæmi sé  tekið.  


  6. Framsókn telur mikilvægt að tryggja net friðlanda í óbyggðum og að unnið verði áfram að uppbyggingu friðaðra svæða í náinni samvinnu við sveitarfélögin og með landnýtingaráætlanir að leiðarljósi.  


  7. Framsókn telur að ætti landvörslu í samráði við heimamenn og skýra ábyrgð hennar á viðkvæmum svæðum. 


Umhverfis- og loftslagsmál

  1. Framsókn vill stuðla að markvissari innleiðingu hringrásarhagkerfisins í íslenskt samfélag. Mikilvægt er að leita lausna sem henta íslenskum aðstæðum og til þess þarf öfluga forystu og góða samvinnu ríkis, atvinnulífs og sveitarfélaga. 


  2. Framsókn leggur áherslu á að styðja við grænar nýsköpunarlausnir sem geta skapað störf og aukið útflutningstekjur.  


  3. Framsókn vill tryggja að loftslagsaðgerðir styðji við efnahagslegan vöxt og hagsæld fremur en að hamla honum. 

Loftslagsváin 

  1. Ísland getur verið fyrirmynd annarra ríkja með stefnu um kolefnishlutleysi og virkri þátttöku á alþjóðavettvangi.  


  2. Framsókn telur að um leið og farið er í aðgerðir til að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda verði unnið að aðlögun að loftslagsbreytingum sem taki bæði mið af sviðsmyndum hlýnandi og kólnandi loftslags hér á landi. 


  3. Framsókn vill leggja áherslu á orkuskipti í samgöngum, kolefnisbindingu með skógrækt landgræðslu markvissari aðgerðir til að auka endurnýtingu efna og úrgangs sem og hvata sem draga úr hvers kyns sóun.  

Loftslagið 

  1. Framsókn vill styðja enn frekar við nýsköpun sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda í iðnaði og annarri orkufrekri starfsemi sem og innan græna hagkerfisins.  


  2. Framsókn telur mikilvægt að styðja allar hliðar atvinnulífsins til að leita umhverfisvænni lausna í sinni starfsemi, hönnun og vöruþróun. Menntun og nýsköpun 


  3. Framsókn vill tryggja fræðslu um loftslags- og umhverfismál meðal annars í gegnum menntakerfið. Skólastarfið þarf einnig að styðja við og efla nýsköpun á þessu sviði þvert á skólastig. 


  4. Framsókn telur nýsköpun og nýjar lausnir lykilatriði til þess að sigrast á þeirri áhættu sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Efla þarf fræðslu og hvetja frumkvöðla til að huga að lausnum sem snúa að lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa, aukinni hringrás og eflingu sjálfbærrar þróunar. 

Hringrásarhagkerfið 


  1. Framsókn leggur áherslu á mikilvægi hringrásarhugsunar með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Nýta þarf tækifæri sem snúa að aukinni samkeppnishæfni og hagræðingu með jákvæðum aðgerðum fyrir samfélagið og umhverfið. Með hringrásarhugsun er lögð áhersla á fullnýtingu auðlindastrauma sem falla til innan svæðisins. Ísland á að vera leiðandi í ábyrgri meðhöndlun, endurnýtingu og endurvinnslu úrgangs. 


  2. Framsókn vill styðja við uppbyggingu hringrásarhagkerfis þar sem úrgangur og aðföng eru endurunnin og endurnýtt á þann hátt að þau skapi verðmæti fyrir samfélagið.  


  3. Framsókn telur mikilvægt er að útfærsla nýrra laga um samræmda flokkun úrgangs í hringrásarhagkerfinu gangi hratt fyrir sig með góðri samvinnu sveitarfélaga, fyrirtækja og almennings. Veruleg verðmæti geta falist í nýjum  afurðum sem verða til í hringrásarhagkerfinu. 


  4. Framsókn vill halda á lofti mikilvægi þess að minnka matar- og fatasóun og gera grein fyrir áhrifum hennar í loftslagsmálum almennt.  


  5. Framsókn leggur til að sveitarfélög styði fyrirtæki og stofnanir í sínu nærumhverfi til þess að sporna við matarsóun. Tryggja þarf hagræna hvata til fyrirtækja sem gefa matvæli, nauðsynjavörur og draga þannig markvisst úr matarsóun. Styrkja þarf farvegi til móttöku á notuðum fötum og textíl. 

  1. Framsókn hvetur öll sveitarfélög til að setja sér stefnu til að draga úr matvælasóun s.s. með frískápum. 

  1. Framsókn telur matvælaframleiðslu aldrei hafa verið brýnni en nú þar sem hún eykur fæðuöryggi og dregur úr kolefnisspori landsins í heild. Mikilvægi þess að við séum sjálfum okkur nóg kemur sífellt betur í ljós. Mikill ávinningur fæst af nýtingu útblásturs CO2 og glatvarma til ræktunar á grænmeti og ávöxtum. 


  2. Framsókn vill styðja við nýsköpun í matvælaframleiðslu og tilraunir við ný matvæli svo sem úr þörungum og dýrasvifi. 


  3. Framsókn leggur áherslu á að framleiðendur og seljendur vöru séu hvattir til að huga að umbúðanotkun og sóun. Skoða þarf af festu hvort þörf sé á reglugerð eða almennum viðmiðum. 


Endurvinnsla úrgangs 

  1. Framsókn leggur áherslu á að byggja upp innviði sem styðja raunverulega endurvinnslu og minnka kolefnisspor úrgangsmeðhöndlunar. 


  2. Framsókn telur grunndvallaratriði að fjárfest verið í háhitasorporkustöð fyrir blandaðan úrgang. Núverandi staða með flutningi á blönduðu sorpi til brennslu erlendis felur í sér umtalsvert kolefnisspor og því ljóst að um er að ræða mikilvægt umhverfismál. Með sorporkustöð er hægt að nýta varmaorku og draga úr olíu- eða virkjunarþörf. Hafa þarf í huga þær reglugerðabreytingar sem hafa nýverið verið gerðar með banni á urðun lífrænna vefja. 


  3. Framsókn telur að auka þurfi eftirlit með úrvinnslusjóði með það að markmiði að  tryggja að endurvinnanlegur úrgangur fari sannarlega aftur í hringrásarhagkerfið. Tilgreina þarf hver ábyrgð framleiðenda og innflytjenda er og taka tillit til þeirra endurvinnslumöguleika sem hér bjóðast. Fylgja þarf eftir þessum markmiðum og mæla árangur með skilmerkilegum hætti. 


  4. Framsókn vill að leitað verði umhverfisvænni kosta við losun sorps sem ekki er hæft til endurvinnslu. Það sé skynsamlegt að skoða hvoru tveggja lág- og háhitasorpbrennslur.  


 Samþykkt á 38. Flokksþingi Framsóknar í Reykjavík 14.-15. febrúar 2026.