Eftir nokkurt hlé mun málefnastarfið fara af stað nú í byrjun september. Starfræktir eru sjö málefnahópar sem munu hittast reglulega í vetur. Vonast ég til þess að sem flestir geti tekið þátt í málefnastarfinu og vil ég hvetja alla áhugasama til að skrá sig í hópa á sínu áhugasviði. Skráning í hópa fer m.a. fram á vefsíðu Framsóknarflokksins http://www.framsokn.is/Forsida/Skraning_i_malefnahopa.
Nánari upplýsingar um málefnastarfið verða sendar út á næstunni.
Bestu kveðjur, Sigurður Hannesson formaður málefnanefndar
36. sambandsþing SUF í Borgarnesi 25.-26. september 2010
36. sambandsþing SUF fer fram dagana 25. og 26. september í Borgarnesi. Dagskrá þingsins er eins og hér segir.
Laugardagur 25. september 09:00 Skráning og afhending þinggagna 10:00 Þingsetning Kosning þingforseta (2) Kosning þingritara (2) Kosning starfsnefndar (3) 10:10 Skýrsla stjórnar og reikningar 10:30 Drög að ályktunum kynntar 10:40 Málefnahópar taka til starfa Hópur 1 - Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál Hópur 2 - Efnahagsmál Hópur 3 - Atvinna, samgöngur og umhverfi Hópur 4 - Menntun, menning og íþróttir Hópur 5 - Velferð Hópur 6 - Lagabreytingar og aðrar tillögur 15:00 Afgreiðsla mála (hefst á afgreiðslu lagabreytinga og ályktunar um Evrópusamvinnu) 16:30 Hópefli í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi 19:00 Kokteill í boði þingmanna Framsóknarflokksins 20:00 Hátíðarkvöldverður og skemmtun fram eftir kvöldi Sunnudagur 26. september 10:00 Afgreiðsla mála 11:00 Kosningar Formaður Stjórn (12) Varastjórn (12) Skoðunarmenn reikninga (2) Varaskoðunarmenn reikninga (2) 12:00 Hádegismatur 12:30 Afgreiðsla mála heldur áfram ef á þarf að halda Þingslit um miðjan dag
Gagnlegar upplýsingar
Þinggjöld Þinggjald er 2.500 kr. innifalið í þinggjaldi er hádegismatur á laugardegi og sunnudegi, kaffiveitingar auk þinggagna. Tekið verður á móti greiðslu þinggjalda til kl. 10:30 á sunnudegi.
Fundarstaður Formleg þingstörf fara fram í Menntaskóla Borgafjarðar, Borgarbraut 54 í Borgarnesi.
Hátíðarkvöldverður Hátíðarkvöldverður á laugardegi fer fram í Félagsbæ, Borgarbraut 4. Boðið verður upp á hlaðborð frá Hvíta bænum Hamri, skemmtiatriði og lifandi tónlist fram eftir kvöldi. Miði í hátíðarkvöldverð kostar 2.900 kr. fyrir þá sem greitt hafa þinggjöld en annars 3.900 kr.
Seturéttur á þinginu Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn kl. 10:00 laugardaginn 18. september á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu.
Framboðsfrestur Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir kl. 10:00 laugardaginn 18. september. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband við þá einstaklinga sem skipa starfsnefnd þingsins eða á netfangið suf@suf.is
Lagabreytingatillögur Samkvæmt grein 6.4 í lögum SUF skal tillögum að lagabreytingum skilað eigi síðar en 14 dögum fyrir setningu þings sambandsins eða fyrir kl. 10:00 laugardaginn 11. september. Tillögum skal skilað á netfangið suf@suf.is
Málefnastarf SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum, formlegum og óformlegum sem fyrst á netfangið suf@suf.is. Þær tillögur sem liggja fyrir kl. 12:00 föstudaginn 17. september verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.
Hópefli Klukkan 16:00 á laugardegi er gert ráð fyrir að hittast í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi, fara í bandý, þétta raðirnar og skreppa í sund. Íþróttamiðstöðinni lokar kl. 18:00 og fá þinggestir tíma í kjölfarið til þess að undirbúa sig fyrir kokteil í boði þingmanna Framsóknarflokksins og kvöldverð sem hefst kl. 19. Æskilegt er að mæta með íþrótta- og sundföt í hópeflið. Einnig er gott að mæta með spariföt fyrir kvöldverðin.
Gisting Í Borgarnesi má finna fjölbreytta gistimöguleika. Eftirfarandi staðir bjóða upp á afslátt þinghelgina sé tekið fram við bókun að um sé að ræða pöntun vegna sambandsþings SUF.
Borgarnes Youth Hostel Farfuglaheimilið í Borgarnesi er staðsett í gömlu bæjarskrifstofunum í gamla miðbænum. Húsnæðið hefur verið endurbætt og hýsir nú gististað. Svefnpokapláss kr. 3.300 (kr. 2.500 fyrir félaga í Yout Hostel) 2. m. herbergi kr. 9.400 (kr. 4.700 á mann) Ýmsir aðrir möguleikar sem eigandi hostelsins getur útvegað t.d. íbúð í Borgarnesi með öllu fyrir fjóra eina nótt á kr. 15.000. Bókanir í síma: 434-1566 / 842-5866 eða á borgarnesbb@internet.is Heimasíða: http://www.hostel.is/extern.asp?cat_id=730
Ferðaþjónusta bænda Bjargi, Borgarnesi Bjarg er gamall bóndabær í útjaðri Borgarness, þar hafa gömul útihús verið innréttuð sem gistihús. Gisting er í séríbúð fyrir allt að 4 með eldunaraðstöðu og baði og einnig í íbúð með 3 herbergjum; 1 x 2ja manna og 2 x 4ra manna herbergjum með sameiginlegri eldunaraðstöðu og baði. Eins manns herbergi með baði og morgunverð kr. 6.500 Tveggja manna herbergi með baði og morgunverð kr. 10.500 (5.250 á mann) Eins manns herbergi með sameiginlegu baði, með morgunverð kr. 5.400 Tveggja manna herbergi með sameiginlegu baði, með morgunverð kr. 8.700 (4.350 á mann) Bókanir í síma: 437 1925 / 864 1325 eða á bjarg@simnet.is Heimasíða: http://www.sveit.is/FarmDetails.aspx?No=95
Borgarnes Bed & Breakfast Borgarnes Bed & Breakfast er staðsett við sjávarsíðuna í miðbæ Borgarnes. Gistiheimilið hefur upp á að bjóða fjögur tveggja manna herbergi með tveimur sameiginlegum baðherbergjum með sturtu. Eins manns herbergi með morgunverði kr. 6.700. Tveggja manna með morgunverði kr. 8.900. Þriggja manna með morgunverði kr.11.800. Aukarúm og morgunverður kr. 2.400. Heimasíða: http://www.borgarnesbb.is