Standa vörð um þá atvinnustarfsemi sem fyrir er í bænum.
Endurvekja Atvinnumálanefnd og koma á starfi verkefnastjóra í atvinnumálum Akureyrarbæjar, sem hafi það hlutverk að vinna að átaksverkefnum í atvinnumálum í samstarfi við Vinnumálastofnun, Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og fleiri aðila.
Stofna embætti umboðsmanns Akureyrar sem hafi það hlutverk að standa vörð um þau opinberu störf sem hér eru fyrir og koma fleiri verkefnum á vegum ríkisins norður.
Að Akureyrarbær komi að stofnun viðskiptaráðs sem yrði samstarfs-vettvangur bæjarins og fyrirtækja í bænum um sameiginlega hagsmuni og atvinnuuppbyggingu.
Auka samvinnu sveitarfélaga á Norðausturlandi um sameiginlega hagsmuni í atvinnuuppbyggingu.
Standa vörð um og efla starfsemi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
Efla samstarf og kynningu aðila í atvinnusköpun og nýta hugmynd Iðngarða til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi með sérstaka áherslu á ungt fólk.
Láta gera úttekt á því hvaða áhrif innganga Íslands í ESB annars vegar og svokölluð fyrningarleið í sjávarútvegi hins vegar hafi á Akureyri og nágrannasveitarfélög.
Félagsmál
Við viljum:
Að Akureyrarbær verði áfram í fremstu röð í félagsþjónustu, heilsugæslu og öldrunarmálum.
Vinna áfram að uppbyggingu þeirrar þjónustu sem auðveldar fólki að búa sem lengst á eigin heimili.
Tryggja að fjárframlög til félagsþjónustu verði ekki skert þrátt fyrir þrengri stöðu sveitarfélagsins.
Leita leiða til að bæta úr brýnni þörf í búsetumálum fatlaðra.
Koma á samstarfi með þeim aðilum sem vilja byggja upp þjónustukjarna fyrir aldraða.
Tryggja og efla atvinnuúrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu. Skólamál
Við viljum:
Verja grunnþjónustu í leik-og grunnskólum Akureyrarbæjar og gæta þess að þeim verði bættur sá niðurskurður sem þeir hafa orðið fyrir eins fljótt og fjárhagur bæjarins leyfir.
Hlúa að og efla innra starf í leik- og grunnskólum bæjarins.
Efla samstarf Akureyrarbæjar og skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri.
Skapa samfellu í vinnudegi nemenda með því að tengja saman grunnskóla og íþrótta- lista- og tómstundastarf.
Tryggja fjármagn til þess að hægt sé að koma betur til móts við einstaklingsþarfir nemenda í leik-og grunnskólum og sjá til þess að þeir fái þá þjónustu og aðstoð sem þeir þurfa.
Að matseðlar í leik- og grunnskólum bæjarins taki alltaf mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna.
Að skoðaðir verði möguleikar á hagræðingu og samvinnu mötuneyta leik- og grunnskóla.
Að kannaðir verði möguleikar á tækninámi við Háskólann á Akureyri með tengingu við verknám Verkmenntaskólans og atvinnulífið.
Samfélags- og mannréttindamál
Við viljum:
Standa vörð um starfsemi Rósenborgar.
Tryggja áframhaldandi starfsemi Menntasmiðju kvenna og unga fólksins og vinna að Menntasmiðju karla.
Tryggja starfsemi göngudeildar SÁÁ á Akureyri.
Fylgja eftir fjölmenningarstefnu Akureyrarbæjar og koma á þjónustu við innflytjendur í Ráðhúsi bæjarins.
Efla forvarnir með aukinni samvinnu við heimili og fjölskyldur.
Skilyrða að öll æskulýðs-, tómstunda- og íþróttafélög sem Akureyrarbær styrkir hafi virka forvarnarstefnu.
Halda áfram starfi Almannaheillanefndar og nýta þá reynslu sem þar hefur fengist.
Skipulagsmál
Við viljum:
Endurskoðun á því miðbæjarskipulagi sem núverandi meirihlutaflokkar hafa lagt fram.
Að endurskoðað skipulag sé byggt á raunhæfum markmiðum og kostnaðaráætlunum.
Stuðla að fegrun umhverfis og húsa í miðbænum og betri nýtingu þess húsnæðis sem þar er. Sérstaklega skal taka mið af viðhaldi eldri húsa sem hafa varð
;veislugildi fyrir sögu og menningu Akureyrar.
Að óvissu um Dalsbraut verði eytt á kjörtímabilinu og ákvörðunin verði byggð á raunhæfum forsendum.
Vinna að því að deiliskipulag Oddeyrar fyrir neðan Hjalteyrargötu verði unnið sem fyrst á kjörtímabilinu í samráði við bæjarbúa og hlutaðeigandi.
Vinna að frágangi strandlengjunnar frá miðbæ að flugvelli.
Vinna að heildarskipulagi útivistarsvæða í Eyjafirði í samvinnu við nágrannasveitarfélögin.
Samgöngumál
Við viljum:
Vinna að því að flugstöðin á Akureyrarflugvelli verði stækkuð og millilandaflugi búin sú aðstaða sem til þarf.
Berjast fyrir því að innanlandsflugvöllur í Reykjavík verði áfram í Vatnsmýrinni og þrýsta á betri flugsamgöngur til og frá Akureyri, m.a. að morgunflugi verði komið á aftur frá Akureyri.
Vinna áfram markvisst að uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga á Akureyri.
Að gerð verði langtímaáætlun um nauðsynlegt viðhald gatna á Akureyri.
Stuðla að því að ráðist verði í gagngerar endurbætur á Þingvallastræti.
Standa vörð um samgöngur við Hrísey og Grímsey.
Vinna að því að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyrarflugvelli. Íþróttamál
Við viljum:
Hækka styrk til barnafólks vegna íþrótta- , tómstunda- og listiðkunar.
Styrkja innviði íþróttahreyfingarinnar í samstarfi við félögin og ÍBA, og vinna í samvinnu við félögin að hagræðingu í rekstri.
Auka samvinnu grunnskóla og íþróttafélaga í íþróttakennslu yngstu barna og huga að íþróttaskóla.
Bæta úr brýnustu vandamálum í Hlíðarfjalli s.s.bílastæðum, barnalyftu og veitingaaðstöðu.
Efla stuðning við unga afreksíþróttamenn við æfingar samhliða unglinga- og framhaldsskólavinnu.
Að gerð verði áætlun um Akureyri sem íþróttabæ þar sem menntun og fjölbreytt íþróttastarfsemi í bænum vinni saman.
Koma á árlegum kynningardegi á íþróttum, tómstundum og listgreinum í skólum bæjarins fyrir nemendur og foreldra.
Menningarmál
Við viljum:
Að Akureyri verði í fararbroddi sem miðstöð menningar og lista á Íslandi.
Að menningarhúsið Hof gegni lykilhlutverki í menningarlífi bæjarins og verði öflugur stuðningur við það listalíf sem fyrir er í bænum.
Standa vörð um öfluga starfsemi í Listagili og finna Ketilhúsinu framtíðarhlutverk.
Standa vörð um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og starfsemi Leikfélags Akureyrar.
Skilgreina frekar hlutverk Akureyrarstofu og aðkomu hennar að menningarmálum bæjarins.
Stuðla að auknu samstarfi menningarstofnana og leik- og grunnskóla með það í huga að kynna listir markvisst fyrir börnum og unglingum. Náttúruverndarmál
Við viljum:
Móta heilsteypta umhverfisstefnu Akureyrarbæjar.
Að Akureyrarbær verði sjálfbær í sorpmálum með flokkun og endurvinnslu að leiðarljósi.
Gera stígakerfi útvistarsvæða hluta af göngu- og hjólreiðakerfi bæjarins og stuðla með því að umhverfisvænni ferðamáta. Bæta aðgengi að Glerárdal sem fólkvangi.
Endurmeta starfsemi Flokkunar Eyjafjarðar.
Fylgja eftir átaksverkefni gegn útbreiðslu lúpínu og skógarkerfils í bæjarlandinu og þá sérstaklega í Hrísey.
Leggja aukna áherslu á merkingar á örnefnum og göngu- hjóla- og reiðleiðum um bæjarlandið.
Stjórnsýsla
Við viljum:
Ráða bæjarstjóra með faglega þekkingu á fjármálum, rekstri og stjórnun fyrirtækja.
Tryggja að Akureyri verði í fararbroddi sveitarfélaga varðandi stjórnsýslu.
Auka upplýsingastreymi m.a. með því að koma á rafrænum skoðanaskiptum við bæjarbúa.
Efla og þróa íbúalýðræði og ná fram betri virkni í hverfisráðum.